Vei, 1. des., ekki slæmt! Er farin að hlakka alveg ofboðslega mikið til jólanna og að komast heim í frí og hitta alla! Bara 16 dagar þangað til! Það er búið að skreyta Montréal-borg út og suður og hún er mjög falleg þessa dagana. Um daginn var líka kominn þessi yndislegi jólasnjór en hann hvarf og síðustu dagana er eiginlega búin að vera hitabylgja í gangi. Ég vona bara að það komi bráðum snjór aftur. Við Pétur erum að fara á jólaball hjá vinnunni minni á laugardaginn sem verður haldið á einu flottasta hótelinu í borginni og ég veit enn ekki í hverju ég á að vera, alger skandall. Reyni kannski að finna mér eitthvað ódýrt og flott á eftir. Svo ætlar Lucy að halda jólapartý fyrir samstarfsfólkið á föstudaginn eftir viku og þá verður bara ein vika þangað til að við leggjum í hann, úff get ekki beðið! Svo eru Elli og Anna Lilja búin að tilkynna komu sína hingað 12. des og verða þangað til þau fara til NY (held ég) þann 16. áður en þau fara heim, jibbí! Ég er svona álíka spennt fyrir þessum jólum og ég var fyrir 20 árum þegar ég var 8 ára. Margir vinir okkar hérna (mannfræðingarnir) eru svo anti-materíalískir og anti-trúarlegir að þeim finnst hallærislegt að vera jólabarn og segja að Halloween eða Thanksgiving sé uppáhaldshátíðin þeirra. Ég prumpa nú bara á það, ég meina fær maður viku frí og fullt af pökkum á Halloween eða Thanksgiving? Nei, þokkalega ekki, útrætt mál, jólin rokka! og hver var að tala um trú? Ég hlakka svo til, ég hlakka alltaf svo til...

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home