Þar sem ég er svo löt að skrifa ætla ég bara að reyna að koma með svona stutta pósta með reglulegu millibili. Nú er veturinn víst kominn aftur, allavega haustið, ég held að Pétur hafi tekið þetta með sér frá Íslandi, hann fékk bara einn góðan dag hérna úti.
Við hjónakornin erum búin að hafa það mjög gott. Ég tók mér frí á föstudaginn um síðustu helgi en Pétur var að vinna allan daginn þar sem að hann ákvað að sækja um styrk á síðustu stundu en hann náði að klára það á mettíma strákurinn! Svo var ég með magakveisu, mjög skemmtilegt en reyndi að láta það ekki á mig fá. Er reyndar enn að fá svona skemmtilegheit á morgnana (veit ekki hvort ég má fara út í nánar lýsingar á svona opinberu bloggi...), geri helst ráð fyrir að Pétur hafi komið með einhverja gerla frá Afríku sem ég þoli svona illa...
Svo fórum við til Québec-borgar á laugardaginn og gistum í eina nótt. Québec er mjög falleg borg og ég held barasta elsta borgin í N-Ameríku. Þarna er mjög gamall og skemmtilegur miðbær sem er umkringdur borgarmúrum. Við löbbuðum um í kulda og hvassviðri, borðuðum góðan mat í rómó stemningu. Eftir 24 klukkutíma þegar við vorum búin að gana hverja götu allaveg tvisvar ákváðum við svo að bruna (með rútu) beint til okkar heittelskuðu Montreal og náðum að kíkja í Thanksgiving-boð hjá Scott. Þar var fullt af mannfræðingum, meðal annars nokkrir nýir sem virðist vera mjög viðkunnanlegt fólk, og fullt af góðum mat. Ég er í raun farin að hallast að því að Pétur hafi rétt fyrir sér þegar hann segir að allir mannfræðingar séu skemmtilegir, þetta er yfir höfuð mjög opið og fordómalaust fólk.
Svo gengur lífið bara sinn vanagang og mér finnst að Pétur hafi aldrei farið. Í gær fórum við í IKEA og keyptum okkur svolítið dót, alltaf má bæta við drasli í litlu íbúðina en ég held að þetta sé að verða komið nóg, bæði af mublum og af bloggi... Bless í bili.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home