þriðjudagur, september 06, 2005

Í sjöunda himni...

Þetta var í einu orði sagt geggjuð helgi! Anna Lilja og Elli komu á föstudaginn og við löbbuðum út og suður og borgina alla helgina, fórum niður í gamla bæ og upp á fjall og ég held að þau hafi bara skemmt sér mjög vel. Það var æðislega gaman að hafa þau og ósköp einmanalegt í gærkvöldi eftir að þau voru farin.

Toppurinn á þessari löngu helgi var svo í gær þegar ég lét langþráðan draum rætast og skellti mér í fallhlífastökk með nokkrum vinnufélögum. Ég fór í svokallað tandem jump, þ.e. var hangandi utan á leiðbeinanda og stökk úr 12.000 feta hæð (ca. 4km) og fékk 45 sekúndna frítt fall. Þetta var alveg ólýsanleg tilfinning og ég skil bara ekkert í mér að hafa ekki drifið mig fyrr, t.d. eins og þegar ég var 18 ára og við Helga vinkona vorum búnar að lofa hvorri annari að fara en það eru 10 ár síðan... Það sem kom mér eiginlega mest á óvart er hvað ég var ótrúlega róleg og ekkert svo sjúklega stressuð, hafði bara gaman að þessu. Ég var alveg búin að ákveða fyrir að ég myndi aldrei gera þetta aftur en ég er bara ekkert viss um að ég geti staðið við það, sorrý mamma! Ég er samt búin að lofa Pétri að stökkva ekki aftur fyrr en hann er kominn út þannig að það verður líklega ekki í bráð enda fallhlífastökkstímabilið að verða búið. Ég stökk um leið og bresk stelpa sem er að vinna með mér og heitir Lucy og er mjög hress og skemmtileg. Hún lét taka videó af sér en það kostaði svolítið meira en ég sést aðeins á því og ætla að fá að skrifa diskinn. Það hefði hvort sem er ekki komist annar myndatökumaður í þessa rellu, við þurftum gjörsamlega að pússla okkur í hana og við vorum sex með flugmanninum. Svo fengu Anna Lilja og Elli náttúrulega að fylgjast með þessu öllu saman og tóku myndir. Ég verð að viðurkenna að það er ansi erfitt að fara aftur í vinnuna eftir svona helgi en svona er lífið...

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com