föstudagur, júlí 15, 2005

Einhverra hluta vegna er ég ekki í neinu stuði til að blogga. Ég hef líka mest lítið heyrt í fólki að heiman þannig að ég nenni varla að láta vita af mér. Allt bærilegt að frétta. Fór í klippingu í gær og enn einu sinni fór hárgreiðslukonan að dásama mitt ljósa hár og fattaði náttúrulega engan veginn að þetta var hálfgerð móðgun. Ég meina, það væri svo sem allt í lagi að vera ekta ljóska en ég hef bara alltaf litið á mig sem dökkhærða og finnst það bara fínt. Æ, en hvað ætli þetta skipti svo sem máli þegar maður litar hvort sem er á sér hárið nema hvað að nú tímdi ég því ekki enda búin að eyða ótæpilega síðan ég kom hingað út. Þannig að ég ætla bara að vera dökkhærð ljóska það sem eftir er sumarsins.

Er líklega að fara að hitta vinnufélaga í kvöld en ætla bara að taka því rólega og fara snemma heim, er í rólegheitastuði... Væri svo sem alveg til í að hitta einhverja aðra en það stendur bara ekki til boða og ég ætla að reyna að vera ekki uppáþrengjandi týpan. Fer kannski í pikknikk með nokkrum mannfræðingum á morgun ef ég verð í stuði. Svo ætla ég bara að liggja í sólbaði og kaupa mér viftu svo að ég geti sofið á næturnar. Annars er ég komin með skítakvef um miðjan júlí í sól og 30 stiga hita, ójá. Svo labba ég mér kannski út á vídeóleigu og horfi á mynd í nýja DVD-spilaranum, ætli það verði bara ekki toppurinn á helginni, svei mér þá. Veiii, það er svo mikið að gerast hjá mér þessa dagana... Ég er samt ekki þunglynd sko, bara róleg. Ekki nema von að ég sé löt við að blogga, vona bara að enginn hafi drepist úr leiðindum við að lesa þetta.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com