Ferðafílingur
O, nú er ég alveg að deyja úr spenningi fyrir NY-ferðinni, heimsókn systra minna, Íslandsferð o.s.frv. Ég hef þvílíka þörf fyrir að fá smá frí því að síðasti frídagurinn hérna var föstudagurinn langi og það var bara einn dagur. Við ætlum að leggja af stað beint eftir vinnu á morgun og það á ekki að taka mikið meira en 6 klukkutíma að keyra þetta. Við erum voða lítið búin að skipuleggja tímann í New York en Gillian, Martin og Julia eru búin að tala við eitthvað fólk sem þekkir borgina vel og hefur sagt þeim hvað er sniðugt að gera. Svo ætlum við Pétur náttúrulega að hitta ættingja hans sem búa í borginni en við fáum að gista hjá föðursystur hans sem býr í Brooklyn, alveg hreint frábært!
Annars bara allt við það sama. Um helgina fórum við út bæði kvöldin. Á föstudaginn fórum við á bar sem heitir Ste. Elizabeth sem er með frábærum bakgarði þar sem við sátum allt kvöldið. Á laugardaginn fórum við í kveðjupartý sem var haldið til heiðurs Erin sem er að flytja til baka til B.C. Á sunnudaginn fórum við svo í göngu með Guðrúnu, Mathieu og Fabrice við vatn sem er í um klukkutíma fjarlægð frá borginni. Það var alveg æðislegt að komast aðeins út úr borginni og þetta er mjög skemmtilegt svæði og veðrið var gott.
Hef ekki meira að segja í bili en vona að ég hafi frá ýmsu að segja eftir helgina og fullt af myndum líka. Góða helgi!

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home