föstudagur, apríl 29, 2005

Myndir

Ég var að setja inn nýjar myndir í albúm sem heitir 4-Apríl. Þetta eru nú aðallega myndir af okkur Pétri, ekkert sérlega spennandi...

Veðrið versnaði aftur eftir hitabylgjuna sem kom um daginn, það hefur kólnað og rignt mikið. Ég vona að það komi bráðum gott veður aftur, þá er maður miklu glaðari.

Við fórum á tónleika á mánudaginn með hljómsveit sem heitir Arcade Fire og er héðan frá Montréal. Við höfum hlustað svolítið á þetta band og eigum einn disk með þeim sem mér finnst nokkuð góður en er næstum búin að fá leið á. Ég var því ekki búin að gera mér neinar svakalegar vonir en varð frekar svekkt þegar ég þekkti engin lög með bandinu og var ekki alveg að fíla tónlistina. Allt í einu hættu þeir svo að spila og ég spurði Pétur hvort að þeir væru farnir í pásu. Þá kom í ljós að þetta hafði verið upphitunarband númer tvö og að Arcade Fire var að koma á sviðið. Það var mikið hlegið af kjánaskapnum í mér en ég naut tónleikanna jafnvel enn betur eftir að hafa orðið fyrir þessum vonbrigðum því að Arcade Fire voru alveg frábær. Þetta er 7-8 manna hljómsveit sem spilar á hin ýmsu hljóðfæri og þau eru miklu betri "life" en á disknum. Fyrir tónleikana komu Martin og Gillian til okkar og við pöntuðum pizzu og ræddum um hugsanlega New York-ferð seinni partinn í maí. Þá er löng helgi og ég myndi taka einn frídag í vinnunni og ég ætla rétt að vona að þetta verði að veruleika. Á tónleikunum voru svo fullt af fólki sem við þekkjum.

Í kvöld vorum við boðin á frönskukvöld hjá Ericu og Raul en Pétur er að fara yfir próf og ég var að hjálpa honum að klára enn eina styrkjarumsóknina þannig að ég hafði varla tíma og var of löt til að fara til þeirra. Hef samt smá samviskubit yfir að hætta svona við á síðustu stundu. Það er enn brjálað að gera hjá Pétri og mér finnst alltaf eitthvað vera að bætast við en vonandi fer þetta að róast bráðlega.

Ég er reyndar eiginlega alveg uppgefin yfir að hafa verið að ergja mig yfir einhverju skattaveseni alla vikuna. Ég get svo svarið það, skattkerfin hérna (federal og fylkis) eru alger martröð. Ég hélt að það ætti nú ekki að vera mikið mál að gera skattaskýrslurnar fyrir okkur Pétur sem eigum ekki neitt en mér skjátlaðist heldur betur. Það er í raun reynt að flækja þetta og gera manni eins erfitt fyrir og hugsast getur, grínlaust! Ég svitnaði yfir þessu í tvo daga, auðvitað á síðustu stundu og komst að því að við skulduðum bæði skattinum en það er frekar ólíklegt. Á endanum gafst ég upp og við ákváðum bara að borga einhverju fyrirtæki fyrir að gera þetta fyrir okkur en við hefðum auðvitað átt að vera löngu búin að því, við græðum örugglega frekar á því heldur en hitt. Þetta var enginn smá léttir þó að við komum til með að skila skýrslunum of seint inn. Héðan í frá á ég eftir að gera íslensku skattaskýrsluna með mikilli ánægju, húrra fyrir Ríkisskattsstjóra fyrir aðgengilegar og auðskildar skattaskýrslur!!! Ég gæti líka alveg haldið fyrirlestur um netbankana hérna og bankakerfið yfir höfuð, svo ekki sé minnst á helv... símafyrirtækin sem virðast ekki eiga í neinni samkeppni sín á milli en ég er að hugsa um að hlífa ykkur við því...

Svo væri líka gaman að fá smá komment...

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com