Herramenn
Kanadískir karlmenn eru miklir herramenn og “ladies first” er þeirra mottó. En málið er bara að íslensk jafnréttiskerling kann ekkert svakalega að meta þessa kurteisi. Til dæmis þegar maður er að koma upp tröppur og einhver bíður eftir manni með opna hurð þá þarf maður eiginlega að hlaupa af stað til að láta ekki bíða of lengi eftir sér og kemur lafmóður síðasta endasprettinn. Nú finnst mér eiginlega bara svolítið vænt um að labba inn á eftir Íslendingunum og fá hurðina beint í andlitið eða þegar Pétur hellir bjór í glasið sitt og gleymir mér. Er þetta líka ekki svolítið gamaldags hugsunarháttur, ég meina það er ekki eins og maður sé lengur hreyfihamlaður í einhverju lífstykki, með sólhlíf í annarri og kjölturakka í hinni... Eins og Pétur segir líka þá getur kvenfólk ekki ætlast til að karlar séu herramenn ef að þær vilja ekki lengur vera dömur. Ef við viljum berjast fyrir jafnrétti þá hlýtur það að virka á báða bóga, eða hvað? Til hamingju með konudaginn stelpur!

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home