laugardagur, febrúar 26, 2005

Loksins, loksins myndir!

Jæja, það tókst að lokum að setja inn myndir, endilega kíkið. Ég setti nokkrar í nýtt albúm sem heitir Desember í Myndir 2004 til þess að fylla þá síðu og svo er slatti kominn inn á Myndir 2005, aðallega frá ísveiðiferðinni í þorpið hans Martins.

Annars lítið að frétta síðan á fimmtudag. Við fórum í bíó í gær á íransk-íraska mynd sem heitir Turtles Can Fly og er um Kúrda við landamæri Tyrklands þar sem krakkarnir stunda það að aftengja jarðsprengjur sem eru svo seldar til SÞ. Þetta er ekki svona steretýpíska ímyndin sem fáfróður Vesturlandabúi hefur af Írak. Ég mæli alveg eindregið með þessari mynd, hún var rosalega átakanleg en mjög góð.

Ég er búin að uppgötva að ég er bara með þokkalega góð laun. Þau eru svipuð og byrjunarlaunin mín voru hjá VST en það er náttúrulega mun ódýrara að lifa hér svo að ég vissi svo sem að þetta væri nokkuð gott. Svo er ég að heyra að fólk eigi jafnvel að lifa af á helmingi lægri launum á mánuði, hvernig er það eiginlega hægt, ég bara spyr?

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com