Afmæli og fleira
Jæja, þá er kerlingin bara orðin 28 ára og bara svona sæmilega sátt við það. Hef hugsað mér að vera unglingur í anda fram yfir fertugt þannig að ég á enn slatta af árum eftir í blóma lífsins... Á afmælisdaginn fór ég út að borða með vinnufélögunum í hádeginu á sushi stað og þau splæstu á mig og ég fékk köku í eftirrétt með stjörnuljósi og þá var sungið fyrir mig. Um kvöldið fórum við pétur bara tvö saman á indverskan veitingastað og fengum alveg geggjaðan mat. Eiginlega átum við bæði yfir okkur og leið hálfilla á eftir, alltaf jafngráðug... Vinir okkar bentu okkur á þennan stað og gáfu í skyn að þau hefðu áhuga á að koma með en ég var eitthvað slöpp daginn áður þannig að við ákváðum að vera ekki að plana neitt og fórum bara tvö, svaka kósí.
Á síðasta föstudag fórum við á lítinn portúgalskan veitingastað með Martin og Gillian og fengum alveg rosalega góðan mat. Það er svo gaman að fara með þeim af því að þau þekkja svo marga sniðuga staði hérna sem okkur hefði aldrei dottið í hug að kíkja á annars. Pétur sló svo um sig á portúgölsku undir lok kvöldsins Portúgölunum til mikillar ánægju sem þóttir heldur óvenjulegt að hitta Íslending sem hefði alist upp í Angóla. Við fórum svo á pöbb á eftir og komum ekki heim fyrr en klukkan 3 sem gerði það að verkum að við vorum ansi þreytt þegar við mættum í Jay Peak rútuna kl. 7 um morguninn. Scott missti af rútunni þannig að við Pétur vorum bara tvö. Við erum núna alltaf með hjálmana sem við keyptum okkur, sem betur fer því að Pétur datt frekar illa á hausinn og ég held að hjálmurinn hafi alveg bjargað honum. Reyndar datt ég líka stuttu seinna en ekki eins illa. Við fórum svo aftur á sunnudeginum og í þetta sinn var Scott með og tók óvænt með stelpu sem hann er eitthvað að deita sem er mjög hress og skemmtileg. Pétur var enn hálfhvekktur eftir að hafa dottið auk þess sem að hann meiðir sig svo í öðrum fætinum á brettinu og ég var líka dauðþreytt og stirð eftir helgina þannig að við fengum eiginlega nóg í bili og ætlum að taka brettapásu þessa helgina.
Í kvöld ætlum við að kíkja á pöbb með Guðrúnu og Mathieu, allt of langt síðan við höfum hitt þau. Þessa helgi er ljósahátíð hér í Montréal og mikið um að vera þannig að við erum að hugsa um að kíkja aðeins út á lífið með vinum okkar, veiiiii!
Ég held að ég sé búin að fatta hvernig ég get sett inn myndir þannig að ég geri það við fyrsta tækifæri.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home