Zzzzzzzzzzzzz
Úff, dagurinn í dag var erfiður í vinnunni. Ég fór ásamt nokkrum vinnufélögum á pöbb eftir vinnu í gær og fór ekki að sofa fyrr en rúmlega 1:00, sem er sko allt of seint fyrir konu sem þarf sinn átta tíma svefn á hverri nóttu. Nú eru hérna tveir Íslendingar, einn maður og ein stelpa, sem er jafngömul mér og getur því ekki kallast kona, sem eru að vinna á Reyðarfirði og eru að læra inn á forritin sem eru notuð í verkefninu. Stelpan er svona sæt íslensk stelpa og vakti strax mikla athygli hjá gaurunum hérna í fyrirtækinu sem eru sko ekkert að leyna aðdáun sinni á hinu kyninu... Ég var allavega sett í það að fá hana með í bjórferð og leið næstum því eins og ég væri að bjóða henni á deit. Þau fóru samt snemma en ég fór samferða þeim síðustu heim í svaka stuði.
Um síðustu helgi fórum við á snjóbretti á svæði sem heitir Mont Orford. Það var fínt, veðrið var yndislegt og svo var skíðastökksýning í gangi sem var mjög gaman að fylgjast með. Á morgun erum við að fara ásamt nokkrum vinum okkar út fyrir borgina að veiða upp um vök. Við gistum hjá foreldrum Martins sem búa þar rétt hjá. Þetta á víst að vera mjög skemmtilegt en það liggur nú við að mig langi meira á snjóbretti... Sem betur fer er snjóbrettaklúbburinn ekki að fara á neitt spennandi svæði þessa helgina þannig að við erum kannski ekki að missa af miklu.
Í kvöld erum við að fara að halda upp á kóreönsk áramót hjá Pierre mannfræðingi sem er hálf kóreanskur. Hann ætlar að sjá um eldamennskuna og ég hlakka mikið til. Held að þetta verði bara rólegheitakvöld að hætti mannfræðinganna, einmitt það sem ég þarf á að halda!

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home