sunnudagur, nóvember 28, 2004

Aðventa

Nú er sko kominn tími til að hlakka til jólanna enda bara 3 og hálf vika þangað til að við förum heim og ég verð nú að segja að ég er farin að hlakka ansi mikið til. Ég er svona aðeins byrjuð að kaupa jólagjafir og svo gerði ég mjög framúrstefnulegan aðventukrans úr tómum rauðvínsflöskum en það er einmitt stolin hönnun frá Krissu frá því í Avignon, hennar var samt flottari en minn... Það er búið að vera ansi rólegt hjá mér í vinnunni undanfarið og það leiðist mér alveg ógurlega. Annars er ég nú ekkert mikið að stressa mig yfir vinnunni hérna jafnvel þó að það sé mikið að gera. Ég helda að það sé nú aðallega þar sem að ég lít ekki á þetta sem neitt framtíðarstarf. Ég reyni nú samt að vera dugleg enda samviskusöm með eindæmum og það er sko engin ímyndun í mér að ég sé róleg heldur höfðu vinnufélgar mínir sérstaklega orð á því. Johanne sagði að hún héldi að þetta væri hluti af menningu minni og Kristian sagði: Yeah, Dora is so cool because she´s from Iceland!

Við Pétur kíktum að sjálfsögðu út á lífið þessa helgina eins og flestar aðrar síðan við komum hingað en við erum alveg harðákveðin í að vera róleg um næstu helgi enda brjálað að gera hjá Pétri í skólanum. Á föstudaginn fórum við á Thomson House en tvær mannfræðistelpurnar áttu afmæli og margir hittust þar til að halda upp á það. Við vorum niðri í kjallara og þar er karókí og til marks um það hvað ég var í miklu stuði þá söng ég ein lag rétt áður en að það var lokað og flestir voru farnir. Fram að því hafði ég hins vegar haft vit á því að dansa bara á meðan hinir voru að syngja og haldið mig eins langt frá míkrafóninum og ég gat. Sem betur fer var ég búin að vera með kvef alla vikuna og hálfraddlaus þannig að ég held að það hafi ekkert heyrst mikið í mér. Ég hef það greinilega enn í mér að hafa gaman af því að gera sjálfa mig að fífli en það voru nú fleiri þarna þetta kvöld sem höfðu enga sérstaka sönghæfileika. Við Pétur gátum svo að sjálfsögðu ekki verið skynsöm og farið beint heim að sofa þegar Thomson House lokaði klukkan 2 heldur fórum við niður í bæ með Martin og enduðum á úkraínskum skyndibitastað klukkan 4 um nóttina.

Í gær fórum við út að borða með Guðrúnu, Mathieu og bróður hennar Guðrúnar og kærustu hans sem voru í heimsókn. Við fórum á Eþjópískan stað þar sem maður borðar með höndunum og maturinn var mjög góður. Á eftir fóru þau á Café Sarajevo en Pétur þurfti að fara heim að læra og ég fór með honum enda dauðþreytt og sofnaði fyrir klukkan 11.

Að lokum vill ég bara þakka Heiði kærlega fyrir að kommenta og legg til að aðrir taki sér hana til fyrirmyndar.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com