Myndir
Loksins er ég búin að setja inn myndir frá Halloween, þær eru nú hvort margar né sérlega vel heppnaðar en ég vona að þið njótið! Við skemmtum okkur allavega mjög vel.
Ég er alveg að deyja úr spenningi fyrir því að koma heim um jólin. Fékk bara allt í einu svo brjálæðislega heimþrá og þunglyndi yfir því að vera ekki að fara heim um jólin á mánudaginn að við ákváðum bara að drífa í þessu. Komum reyndar á síðustu stundu á aðfangadagsmorgun þar sem Pétur verður að fara yfir próf fram á síðustu stundu og ég átti ekki gott með að losna úr vinnunni fyrr. En við verðum alveg til 9. janúar þannig að þetta eru rúmar tvær vikur. Hlakka alveg ofboðslega til að sjá alla, sérstaklega þá sem hafa búið í útlöndum og ég hef ekki séð í heilt ár, svo að ég tali ekki um nýja fólkið sem ég hef aldrei séð (litlu frænku og Orra Krissu og Kárason) og litlu frændur mína og bara ykkur öll! Nú er bara að spara en samt að reyna að njóta lífsins því að í rauninni höfum við það mjög gott hérna þó að okkur langi ekki til að vera hérna um jólin...
Í gær var allsherjar starfsmannafundur á einu hótelinu rétt hjá íbúðinni okkar. Yfirkonan mín hún Johanne fékk verðlaun fyrir góða frammistöðu 1.000 Kanadadollara sem eru ca. 55.000 krónur. Mér finnst hún alveg eiga þetta skilið enda er hún hálfofvirk og með allt á hreinu, alveg ótrúlega vel inni í öllu. Hún er svolítið fyndin týpa og ég var ekki alveg viss um að það væri gott að vinna með henni fyrst því að hún talaði um sjálfa sig eins og hún væri alger gribba en svo er hún bara besta skinn þó að hún geti stressað sig svolítið stundum (það finnst örugglega sumum fyndið að heyra mig tala um að einhver sé stressaður...). Hún er komin yfir fertugt, rosalega mjó með sítt svart hár og reykir eins og strompur með svakalega viskírödd.
Ætluðum að taka því rólega um helgina en svo var að koma í ljós að það er partý hjá einum mannfræðingnum á morgun en ég geri nú ekki ráð fyrir neinu villtu frekar en vanalega enda er það ágætt.
D

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home