þriðjudagur, október 26, 2004

Kristniboðar

Já, við urðum þeirrar ánægju aðnjótandi að fá heimsókn frá nokkrum slíkum rétt í þessu... Það var bankað á dyrnar og tveir karlar og ein kona stóðu fyrir utan. Einn karlinn var í McGill peysu þannig að ég hélt að þetta væri eitthvað fólk frá háskólanum að hitta Pétur en neeeeeiiiiiiiii, haldiði ekki bara að þetta hafi verið þessir líka vinalegu kristniboðar frá kirkjunni neðar í götunni og þeim lá sko ýmislegt á hjarta. Okkur Pétri fannst líka svo áhugavert að heyra hvað þessir blessuðu (í orðsins fyllstu merkingu) öðlingar hefðu fram að færa að við vorum ekkert að stoppa flauminn sem stóð a.m.k. í hálftíma. Höfðum þó rænu á því að vera ekki að bjóða liðinu inn. Einn talaði mest og bara beint til Péturs. Ég var bara 'his lovely wife...' sem dugar náttúrulega ekki ein og sér ef þú ert ekki í persónulegu sambandi við herra Guð. Mér fannst þó áhugaverðast eftir að þau höfðu kvatt okkur og blessað í bak og fyrir að hlera hvað þau höfðu að segja við gyðingana sem búa við hliðina á okkur. Því að það er alveg á hreinu að þrátt fyrir hreina sál og birtu í hjarta þá eru þessir kristniboðar ekkert að farast úr umburðarlyndi.

Á sunnudaginn fórum við á geggjaðan grænmetismarkað með Gillian frá Alberta og Martin kærasta hennar sem er frá Québec. Þau eru Sigurrósaraðdáendur og mjög skemmtilegt fólk. Þarna var alveg ótrúlegt úrval af fersku grænmeti, ávöxtum og bara alls konar mat á skít og kanil. Á svoleiðis stundum er mjög gaman að búa í útlöndum. Annars er bara allt við það sama. Ég er kannski farin að skrifa of oft, ég hef oft ekkert að segja...

Þeir sem að sakna þess að heyra frá Pétri á þessari síðu gætu þurft að bíða ansi lengi, hann sagði um daginn að hann ætlaði aldrei aftur að blogga af því að hann hefur ekki tíma til þess. Ég skal samt reyna mitt besta til að fá hann til að skrifa smá. Svo er alltaf gaman að fá komment, bara eitthvað, hvað sem er.


0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com