sunnudagur, október 24, 2004

Myndir

Jæja, þá er ég búin að setja nýjar myndir inn. Þar á meðal tvær af herberginu okkar. Við ætluðum að kaupa sjónvarpsborð i gær en það klikkaði þannig að stofumyndir verða ad bíða enn um sinn. Það er líka skemmtilegra að setja inn myndir með einhverju fólki á líka. Við höfum ekki verið nógu dugleg að taka myndir af fólki. Það er samt alveg satt að við erum búin að kynnast fullt af fólki, við erum ekkert að skálda þettu upp...

Þetta er búin að vera rólegheitahelgi. Á föstudaginn fórum við á Thomson House en mannfræðingarnir fara alltaf svo snemma heim að læra eða eitthvað þannig að við fórum með einni stelpunni (Júlíu) og vinum hennar í keilu. Þetta var svona mini-keila með litlum kúlum og það mátti varla á milli sjá hvort að hinir hraustu víkingar voru í keilu eða kúluvarpi og var árangurinn eftir því... Þrátt fyrir kokhraustar yfirlýsingar annars aðilans um eigin íþróttahæfileika og snilld í alla staði fyrir leikinn er ég ekki frá því að við höfum verið nokkurn veginn jafnléleg. Þetta var bara mjög skemmtilegt og gaman að kynnast nýju fólki. Julia er mjog skemmtileg og okkur finnst hún mjög íslensk, svona týpísk MH-týpa, allavega eins og þær voru þegar ég var í menntaskóla. Hún var með kanadanskri stelpu og Quebecískum strák á Thomson House og þau eru öll miklir aðdáendur Sigurrósar og fóru á tónleika með þeim hér í Montréal í fyrra. Þau sögðu að það væri sérstaklega gott að hlusta á þannig músík á veturna og einhvern veginn þá skildi ég alveg hvað þau áttu við!

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com