laugardagur, október 30, 2004

Halloween

Það er eitthvað að mér, nú er laugardagsmorgun og klukkan rétt rúmlega 9 og ég vaknaði fyrir klukkutíma og get ekki sofnað aftur! Ég sem ætlaði að sofa svo lengi til að vera hress í kvöld því að í dag er Halloween og ég er að deyja úr spenningi! Í gær hittum við nokkra mannfræðinga og annað fólk og skárum út grasker, það var alveg svakalega gaman og ég get alveg ímyndað mér að krökkum finnist þetta frábært. Við hittumst heima hjá Gillian og Martin og þarna voru líka Julia og Scott (verð að setja inn myndir af þessu fólki við tækifæri) sem er allt frábært fólk og svo einhverjir sem við höfum ekki hitt áður. G, M og J eru miklir Sigurrósaraðdáendur og líka Bjarkar og Julia var einhvers staðar búin að ná sér í upptökur af plötunni sem Björk gaf út þegar hún var... hvað? 7 ára (held ég). Svo var ótrúlega fyndið að ég tók eftir að Gillian á Álafoss lopa en það er víst fínasta fínt hérna...

Ég man hvað ég ætlaði að segja frá í síðasta bloggi en gleymdi. Á síðasta sunndag þá fór ég út í búð og þegar ég kom til baka inn í blokkina okkar þá var einhver maður að vandræðast með hvernig ætti að hringja í dyrasímann. Hann spurði mig, bara örfá orð og ég hugsaði: 'Þessi maður er Íslendingur' og það reyndist náttúrulega vera rétt. Hann heitir Þórarinn og er að læra söng í McGill og var að leita sér að íbúð í blokkinni. Ég hafði reyndar heyrt af honum frá Íslendingunum í vinnunni. Ég bauð honum upp og við spjölluðum heilmikið við hann. Alveg ótrúleg tilviljun að ég skyldi akkúrat hitta á hann og að hann skyldi spyrja mig!

Í kvöld ætla Marianne hin danska og Anna og Mathias frá Sverige að koma hingað og við ætlum að leggja lokahönd á förðun og panta okkur eitthvað að borða og svo förum við í partý til Erinar sem er með P í mannfræði. Ég ætla að vera fallinn engill en það er stolin hugmynd frá Unni sem var úti í Montpellier um leið og ég. Hún var mjög flottur engill en ég er ansi hrædd um að ég verði bara væmin en það verður bara að hafa það! Ég get notað svartan kjól sem ég á og svo er ég að búa til vængi úr vírherðatrjám og fjaðraskúf. Pétur er enn ekki búinn að ákveða hvað hann verður en mér datt í hug að hann gæti verið Harry Potter. Við erum að fara í búðir á eftir og athuga hvað við finnum fyrir hann. Mér finnst alveg fyndnast það sem tvær stelpurnar í mannfræðinni ætla að vera. Önnur er mjög stór og mikil og hún ætlar að vera svona 'dominatrice' og hin sem er alveg pínulítil ætlar að vera þrællinn hennar (þið vitið svona S&M). Pétur fór einmitt með þeim að versla alls konar sniðugt dót fyrir búningana þeirra... Ég hlakka mikið til að sjá þetta og skil eiginlega alls ekki hvernig þær þora þessu! Við ætlum að taka myndavélina með í partýið í kvöld og ég reyni að setja inn myndir á morgun.

Svo er það bara trick or treat og við erum svo heppin að eiga íslenskt nammi sem Þóra systir sendi okkur en við tímum nú varla að gefa mikið af því...

D

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com