Loksins Bloggar Pétur
Saelir verið þið lesendur Montréal bloggsins, ég veit að ég hef ekki staðið mig í blogginu hingað til en ég ætla að bæta ykkur það upp kæru vinir. Þar sem ég hef tekið námið fram yfir vini og vandamenn og lokað mig af frá því sem er að gerast í "nafla alheimsins" (Íslandi) hef ég ákveðið að koma heim um jólin í heimsókn til að bæta ykkur það upp. Hlaða betteríin í íslenskri náttúru (frétti að Grímsvötn væri staðurinn í dag til að hlaða sig út næstu önn ef ekki næsta áratuginn) og hlæja í góðra vina hópi. Verð nú líka að koma til þess að sjá hvernig breytt pólitískt landslag hefur haft áhrif á samfélagið, er Dóri að standa sig í stjórnklefanum eða er hann bara með á "autopilot"?
Jæja nóg komið af bulli, við Dóra lendum eldsnemma á aðfangadagsmorgunn og förum aftur til Montréal sunnudaginn 9 janúar.
Hlakka til að sjá ykkur,
Pétur lærisveinn

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home