Jólaskap
Já, ég er bara komin í jólaskap eftir að við ákváðum að koma heim um jólin enda ekki seinna vænna þar sem að það er að koma miður nóvember... Ég kemst í hátíðarskap með Helgu Möller er nú búið að söngla í hausnum á mér í viku. Hér er samt jólastússið ekkert komið á fullt sem betur fer, bara smá skraut í sumum búðargluggunum.
Þetta var mjög skemmtileg helgi og við fórum út bæði kvöldin þrátt fyrir að hafa áður ákveðið að vera bara róleg. Á föstudaginn fórum við á stað sem heitir Café Sarajevo með Martin, Gillian og vinkonu hennar sem var í heimsókn. Þetta er svona serbískur pöbb í kjallara og þar er spiluð lifandi tónlist sem minnir á No Smoking Band (þau spiluðu m.a.s. einhver lög með þeirri hljómsveit) úr Underground og Svartur köttur-hvítur köttur. Þarna var mjög skemmtileg stemning og mig langaði helst til að dansa allt kvöldið en hin voru ekki eins æst í það.
Á laugardaginn fórum við svo í partý til Scotts mannfræðinema en það var haldið til heiðurs Morgen sem er að fara aftur heim til Alaska. Scott býr ásamt tveimur stelpum í risastórri og mjög flottri íbúð í gamla bænum með alveg svakalegri lofthæð. Við mættum í partýið klukkan 8 af því að við fórum samferða Erin og Greg sem eru mjög stundvís eins og margir Kanadamenn og fórum svo heim klukkan 4 um nóttina þannig að þetta var 8 tíma partý, svona eins og einn vinnudagur. Það er mjög vinsælt að hafa svona potluck-party þar sem að allir koma með eitthvað að borða. Ég bakaði eplaköku enda eigum við enn allt of mikið af eplum eftir eplatýnsluna. Eina vandamálið var að uppskriftin var í grömmum og við eigum enga vigt þannig að ég varð að slumpa enda þetta reyndist svo hin besta kaka eftir að ég hafði bætt smá sykri ofan á hana.
Hef víst ekki meira að segja í bili.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home