Útstáelsi
Það er nóg að gera hjá okkur í félagslífinu. Á sunnudaginn fóru nokkrir mannfræðinemar á Beastie Boys tónleika og buðu mér með þar sem Pétur þurfti að læra en ég ákvað að fara ekki og sé enn eftir því þar sem að þetta voru víst risastórir og flottir tónleikar. Hér er mikið um að vera og við verðum að vera með augun opin fyrir spennandi tónleikum.
Á þriðjudaginn fór ég út að borða á grískan stað með nokkrum skandinövum en Pétur var einmitt að læra... Suma þeirra hafði ég ekki hitt áður en þetta er allt mjög viðkunnanlegt fólk. Þau fóru svo á einhvern þriðjudagsstað eftir matinn þar sem var alveg svakaleg röð en ég ákvað að fara bara heim enda vinna daginn eftir.
Áðan fórum við svo út að borða með Martin, Gillian, Juliu og vinkonum hennar. Tilefnið var Marteinsmessa en í kaþólskri trú eru allir dagar ársins tileinkaðir einhverjum dýrlingi og mjög trúaðir kaþólikkar halda upp á sinn dýrlingadag eins og afmælisdag. Ég held nú að fyrir Martin sé þetta fyrst og fremst ástæða til að skemmta sér frekar en af trúarlegum ástæðum... Við fórum á spænskan stað og fengum okkur tapas-rétti, nammi, namm. Á eftir voru svo allir að fara á eitthvað show sem er í sama húsi og veitingastaðurinn en Pétur ákvað að fara heim til að læra og ég fékk ekki miða, sem er kannski ágætt því að ég þarf að mæta í vinnuna í fyrramálið.
Jóhanna, yfirmanneskja mín ætlar að bjóða okkur teaminu (við erum 4) út að borða í hádeginu á morgun í tilefni þess að hún fékk þessi frammistöðuverðlaun. Hinir í liðinu eru Billy, sem er um fimmtugt frá Mauritius og af indverskum uppruna, hann er obboslega næs og Kristian, sem er 25 frá Ontario og sumum stelpunum finnst algert æði, svona eins og í unglingamyndunum, svaka fínn náungi. Svo er að sjáfsögðu mannfræðipartý á laugardaginn, í þetta sinn hjá honum Rémy vini okkar. Ég segi nú bara, single gellur, þið ættuð að mæta í eitt svona partý! En ég veit svo sem að þið hafið flóknari smekk en ég eða eitthvað...
Later!

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home