Mánudagur
Þetta var fín helgi. Pétur fór ásamt Steven, sem er Masai frá Kenýa og er með honum í mannfræðinni, með hópi af strákum í Paint Ball á laugardaginn. Þeir voru allan daginn og Pétur var frekar þreyttur þegar hann kom til baka en þetta var víst mjög skemmtilegt. Um kvöldið fórum við svo á The Stills og þeir komu heldur betur á óvart. Við vorum aðeins búin að hlusta á þá á netinu og fannst þeir ekkert spes en þeir voru sko miklu betri life. Þeir eru frá Montréal og voru allir í tónlistarnámi í McGill en eru nú að meika það í hinum stóra heimi og búa í NY. Upphitunarhljómsveitin var ekki síðri en það er líka McGill hljómsveit sem heitir Patrick Watson en við keyptum einmitt disk með henni. Við erum búin að uppgötva aðra hljómsveit síðan við fluttum hingað en það er The Shins frá Seattle sem ég er alveg farin að fíla í ræmur... Mér finnst alveg ótrúlegt hvað þessar hljómsveitir eru ófrumlegar í nafnavali og svo er stíllinn svo sem ósköp svipaður líka.
Eftir tónleikana fórum við svo ásamt Martin og Gillian á pöbbarölt og enduðum með að fá okkur poutine klukkan 4 um nóttina sem er nokkurs konar þjóðarréttur (svona eins og ein með öllu) þeirra Québec-búa en þetta eru franskar fljótandi í brúnni sósu með ostaklessum sem minna helst á tyggjó. Við höfðum smakkað þetta einu sinni áður og fannst þetta alger viðbjóður en M&G eru Poutine-sérfræðingar og kunna greinilega að velja staðina og svo er þetta náttúrulega matur sem á að borða klukkan 4 um nótt eftir pöbbarölt þannig að okkur fannst þetta bara fínt.
Í gær var það svo Bridget Jones sem er hin fullkomna afþreying á sunnudagskvöldi.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home