Bloggleti
Það er svona þegar það er lítið að frétta þá nennir maður ekki að segja frá því litla sem hefur gerst. Hápunktur vikunnar er náttúrulega snjóbrettaferð á laugardegi, ég veit enn ekki hvert við förum um næstu helgi. Um síðustu helgi fórum við til Jay Peak í Vermont í USA. Þetta er mjög skemmtilegt svæði með löngum brekkum en það var ansi kalt og hefði mátt vera meiri snjór. Samt var æðislega gaman. Ég hélt að nefið á mér myndi detta af í kuldanum og þegar Scott sagði mér að nefið á mér væri að verða hvítt og ég væri líklega með smá “frostbite” flýtti ég mér að kaupa lambhúshettu sem ég get dregið alveg fyrir andlitið.
Um kvöldið fórum við svo í mat til Guðrúnar og Mathieu og þar var líka Fabrice hinn franski sem hefur frá mörgu skemmtilegu að segja. Hann og Mathieu eru báðir frá Norður-Frakklandi og það er greinilegt að fólkið þar er aðeins aktívara í djamminu en Suður-Frakkarnir ef marka má sögurnar... Við fórum svo öll saman á bar rétt hjá sem er svona mini-brasserie þar sem er seldur heimabruggaður bjór. Það er samt greinilegt að djammið verður með rólegra móti meðan snjóbrettatímabilið stendur yfir af því að við Pétur verðum að fara snemma að sofa á föstudögum (lögðum t.d. af stað kl. 7 til Jay Peak) og erum frekar þreytt eftir daginn á laugardagskvöldum.
Í kvöld erum við að fara í bíó með nokkrum mannfræðingum á nýjustu mynd Almodovars La Mala Educacion (er það ekki skrifað einvhern veginn svona?). Ég hef heyrt að hún sé mjög góð og hlakka mikið til að sjá hana.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home