fimmtudagur, janúar 20, 2005

Bjór, snjóbretti og 24

Í gær fór ég eftir vinnu og fékk mér bjór með vinnufélögunum. Það var gaman. Ég man þega ég byrjaði að vinna á VST þá fannst mér alveg hræðileg tilhugsun að eyða frítímanum með vinnufélögunum þrátt fyrir að það væri mjög skemmtilegt fólk. En svo kom í ljós að það er bara mjög gaman að fara út með vinnufélögum sínum, sérstaklega hér í Montréal þar sem maður er niðri í miðbæ og bjórinn kostar innan við 300 kall... Það er eiginlega eins gott að ég er farin að drekka bjór því að það er búið að vera verkfall í “Ríkinu” hérna síðan fyrir jól og maður getur ekki keypt almennilegt rauðvín nema að brjótast fram hjá öskureiðum verkfallsvörðum, verð samt að viðurkenna að ég gerði það einu sinni... Það er hægt að kaupa rauðvín úti í búð en það er bara eitthvað drasl og ég er orðin of snobbuð til að láta svoleiðis glundur ofan í mig.

Á laugardaginn ætlum við aftur á snjóbretti. Í þetta skiptið verður farið á Jay Peak sem er í Vermont í USA um tveggja tíma akstur héðan. Flestir segja að þetta sé besta skíðasvæðið í grendinni og ég hlakka ekkert smá til. Þetta er einmitt uppáhaldssvæði Scotts sem er snjóbrettafélagi okkar og hann segir að þarna séu langar brekkur og oft mikið púður, veiiiiiiiii! Ég ætla líka að vígja nýju Burton snjóbrettaúlpuna mína sem ég varð að kaupa af því að hún kostaði bara 100 Kanadadollara (ca. 5.000 kall) og Pétur skipaði mér eiginlega að kaupa. Ég sé sko ekki eftir því.

Annars er ekki fleira að frétta. Við Pétur erum alveg dottin ofan í þriðju seríuna af 24 sem við leigjum á DVD, rosalega spennandi, Jack Bauer er sko minn maður! Ég ætla bara rétt að vona að hann nái sér upp úr dópinu... Síðan verður einhver hittingur um helgina, segi frá því síðar.

Hafið það gott.


0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com