Yfirvinna...
Nú er klukkan 5:15 og ég er enn í vinnunni. Nokkuð sem gerist afar sjaldan en það er víst varla hægt að kalla þetta yfirvinnu þar sem að ég er að bæta upp extra hálftímann sem ég tók í hádeginu til að fara í frönskukúrs og þar sem ég hef ekkert að gera er eins gott að blogga svolítið.
Fyrsti frönskutíminn í dag. Við erum bara fjögur í mínum hópi og getum öll tjáð okkur svolítið á frönsku en mér finnst kennarinn hafa lagt of mikla áherslu á málfræði. Ég kann franska málfræði ágætlega og langar bara til að æfa mig í að tala og bæta við orðaforðann. Það er samt ágætt að fara og liðka sig aðeins tvisvar í viku. Svo ætla ég að reyna að neyða frönskumælandi fólk til að tala við mig frönsku. Það er bara svo ótrúlega auðvelt að komast af hérna bara með ensku. T.d. er ein ný kona í deildinni minni sem er úr frönskumælandi Montréal en hún svarar alltaf á ensku því að foreldrar hennar eru enskumælandi.
Ég held að ég hafi ekki verið búin að segja frá því að fyrir mánuði byrjaði annar nýr í deildinni minni. Hann heitir Marcus, er ameríkani og mjög fínn. Hann situr hinum megin við þilið mitt en ekki nóg með það þá var hann að flytja í íbúðina beint á móti okkur Pétri þannig að við deilum líka baðherbergisvegg... Það liggur við að manni finnist prívatlífið aðeins skaðast við þetta. T.d. í morgun heyrði ég hvenær Marcus fór í sturtu... Ég hef smá áhyggjur af því að hann heyri plúbbsið þegar ég geri númer 2... Verð víst að reyna að venjast tilhugsuninni...
Á laugardaginn fórum við á snjóbretti með snjóbrettaklúbbnum á það svæði sem er næst borginni og heitir St. Sauveur. Þetta er nú örugglega ekki besta svæðið, brekkurnar voru frekar stuttar (samt ekki miðað við Ísland) en margar og svo var færið svolítið hart en okkur fannst alveg geggjað að fara út fyrir borgina og renna okkur í sólinni. Nú er stefnan að fara um hverja helgi allavega annan daginn. Um kvöldið hittum við svo Guðrúnu, Mathieu og Fabrice vin þeirra á írskum pöbb og fengum okkur einn besta borgara sem ég hef fengið. Eftir það drógum við þau svo á klúbb þar sem við vorum búin að mæla okkur mót við Gillian, Martin, Juliu og vinkonu hennar. Á klúbbnum var frenchie jazzie swing-kvöld sem mannfræðistelpurnar eru voða hrifnar af en þá er spiluð gömul frönsk músík og fólk á öllum aldri dansar af mikilli innlifun. Það var mjög skemmtileg stemning og frábært að fylgjast með prímadonnunum sem tróðu sér fremst á sviðið og dönsuðu með mjög svo leikrænum hætti.
Jæja, nú er yfirvinnuhálftíminn búinn svo að það er mál að drífa sig heim...

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home