sunnudagur, desember 05, 2004

Snjókorn falla...

Hér er loksins byrjað að snjóa en samt ekkert mikið. Það er bara búið að vera æðislega fallegt veður um helgina, heiðskírt og frost, samt ekkert allt of kalt enn sem komið er. Við stóðum við þá ákvörðun að hafa þetta rólega helgi og það var bara yndislegt. Fórum í bíó með Martin á föstudaginn og sáum nýju myndina eftir Emir Kusturica. Mér fannst hún ágæt en svolítið löng. Músíkin og dýrin voru voða skemmtileg en ég var kannski ekki alveg rétt stemmd fyrir svona mynd. Var voða þreytt og fór snemma að sofa og vaknaði klukkan 8 á laugardag. Ætlaði að reyna að vaka lengi í gær til að geta sofið út en sofnaði klukkan 12 yfir Alias sem við vorum með á leigu og vaknaði klukkan 7, ég er ekki að grínast! Pétur vakti að sjálfsögðu lengur og vaknaði seinna. Erum alveg svart og hvítt hvað þetta varðar.

Áðan fórum við Pétur í göngutúr niður að gömlu höfninni þar sem er skautasvell og músík. Við höfðum ekki tíma til að fara á skauta þar sem Pétur þurfti að fara að læra en við förum bara seinna. Við tókum myndir og ég ætla að setja þær inn þegar við verðum búin að taka myndir af vinum okkar hér sem ætti að gerast fljótlega.

Takk fyrir öll kommentin, það er alveg æði að lesa þau og gaman að vita hverjir eru að lesa bullið sem maður skrifar. Stundum verð ég alveg sjúklega spéhrædd við tilhugsunina um að það sé einhver að lesa þetta sem ég þekki lítið sem ekkert, þess vegna skrifa ég oft alveg svakalega yfirborðskennd og leiðinleg blogg. Það er líka miklu skemmtilegra að segja frá einhverju villtu djammi en rólegheitahelgi í faðmi fjölskyldunnar... (Nei, Heiður, ég er ekki ólétt!!!)

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com