Púðursnjór
Nú er loksins búið að snjóa aftur, það snjóaði eiginlega stanslaust allan gærdaginn og ætti því að vera fínt í fjallinu á morgun. Annars hefur verið alveg ótrúlega hlýtt undanfarið og snjórinn var eiginlega allur farinn, allavega hér í borginni. Á morgun förum við á svæði sem heitir Sutton og á að vera mjög fínt og ég hef heyrt að þar sem ca. 45 cm nýfallinn snjór, veiiiiii! Við ætluðum að reyna að komast til Jay Peak á sunnudaginn en rútan er víst full þannig að við verðum að láta okkur nægja að fara bara annan daginn. Á eftir ætlum við Pétur að fara að kaupa okkur snjóbrettahjálma til að geta farið í gegnum skóginn í púðrinu á morgun. Ég reyndi einu sinni að fara í gegnum svona skóg, reyndar í hálfgerðu harðfenni og var svo mikil skræfa að ég rann eiginlega bara niður á rassinum. Leiðinlegt hvað maður verður lífhræddur með aldrinum...
Ég dreif mig loksins í gymið fyrir rúmri viku og er búin að fara nokkrum sinnum. Á þriðjudaginn fór ég í Pilates sem er eitthvað skylt Yoga og á að vera mjög styrkjandi fyrir maga og bak. Mér finnst fínt að fara í Yoga og slappa af annað slagið en var ekki alveg að fíla þetta Pilates. Í fyrsta lagi fór helmingurinn af tímanum í að útskýra hvernig við ættum að beita okkur en ég efast um að nokkur hafi verið einvherju nær, allavega var ég það ekki. Mest af tímanum fór svo í að anda og gera einvherjar rólegheitaæfingar sem eru ekki alveg fyrir minn smekk. Það rann ekki einn svitadropi af mér eftir tímann en það kom á óvart að ég fann aðeins fyrir því daginn eftir að ég hafði reynt á líkamann en hann er líka í frekar slöppu formi greyið! Í gær fór ég svo í spinning og hjólaði mig alveg fjólubláa í framan og fílaði mig í tætlur. Ætli ég haldi það ekki út í mesta lagi í 3 mánuði og láti það nægja af líkamsrækt þar til á næsta ári eins og vanalega...
Ég er búin að vera á leiðinni að setja inn myndir mjög lengi og reyni að finna tíma til þess sem fyrst.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home