miðvikudagur, febrúar 16, 2005

Myndavesen

Jæja, nú er ég alveg búin að gefast upp á að reyna að setja inn myndir. Er búin að búa til nýja myndabloggsíðu en ekkert gengur. Hef notað Heremy.com sem hefur virkað hingað til en nú kemur alltaf villumelding um að myndirnar verði að vera á jpg-formati, sem þær að sjálfsögðu eru. Ef einhver getur hjálpað mér, endilega tjáið ykkur!

Annars allt í fína. Fórum á snjóbretti báða dagana um síðustu helgi og erum að hugsa um að fara til Jay Peak báða dagana þá næstu. Færið var gott en kannski ekki eins geggjað og við höfðum gert ráð fyrir, samt var alveg æðislega gaman. Svo á að snjóa heilmikið á Jay Peak þessa vikuna þannig að það ætti að vera fínt um helgina. Á laugardaginn fórum við með snjóbrettaklúbbnum á svæði hér í Québec sem var svona lala. Á sunnudaginn keyrðum við ásamt Marcus nágranna okkar og samstarfsmanni mínum til Jay Peak en við fengum lánaðan bíl hjá einni sem vinnur með okkur og ég er alveg sannfærð um að sé svolítið skotin í honum Marcus... Það eru svo miklar kjaftakellingar í vinnunni minni að það er alltaf eitthvað nýtt slúður í gangi.

Á mánudaginn var Valentínusardagurinn og við ákváðum að við yrðum að taka þátt í því, While in Rome do as the Romans do... Pétur dró fram sína rómantísku hlið og keypti handa mér blóm og köku en við vorum búin að ákveða að elda okkur lax í matinn. Ég gaf honum nú bara væmið kort og lagði til hvítvín með laxinum sem reyndist ljúffengur.

Í gær fórum við svo á tónleika með bandi sem Pétur uppgötvaði á netinu og heitir Antony and the Johnsons. Antony er svolítið spes dragdrottning (tróð samt upp í karlmannsfötum) með alveg rosalega flotta rödd. Ég hafði alltaf séð hann allt öðruvísi fyrir mér og hélt fyrst að hann væri karlmannlegur svartur maður og einhvern veginn hljómar tónlistin öðruvísi eftir að ég sá hann. Kannski líka vegna þess að ég fór aðeins að spá í textunum sem fjalla mikið um ofbeldi af hendi annars karlmanns og ósk hans um að verða falleg kona... Tónleikarnir voru mjög rólegir og stuttir en samt góðir. Önnur mjög góð en allt öðru vísi hljómsveit sem við höfum hlustað mikið á heitir The Arcade Fire og er héðan frá Montréal, mæli eindregið með henni.

Læt þetta duga í bili, vona að ég fái aðstoð með myndirnar.




0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com