Snjór
Það er búið að snjóa stanslaust í allan dag. Það gleður mig mikið. Samt er alveg spurning hvort að við höfum tíma til að fara á snjóbretti um næstu helgi því að það er svo stíft djammprógramm. Á föstudaginn á Scott afmæli og þá ætlar Ari mannfræðingur að halda partý en hann er frægur fyrir að halda góð teiti og býður upp á ókeypis áfengi... Á laugardaginn er svo haldið upp á St. Patricks Day á Thomson House þó að dagurinn sjálfur sé ekki fyrr en einhvern tíma í næstu viku.
Á laugardaginn fórum við á Jay Peak með snjóbrettaklúbbnum. Það fóru þrjár rútur en útlendingarnir (ekki USA eða Kanada) eru alltaf hafðir sér í einni rútunni og tekur aðeins lengri tíma á landamærunum. Í þetta skiptið þurftum við öll að fara út úr rútunni því að landamæraverðirnir vildu fara með leitarhund inn í hana en ég hugsa að international stúdentar séu alls ekki líklegri til að smygla eiturlyfjum en hinir. Þar sem við biðum á landamærunum föttuðum við Pétur allt í einu að við höfðum gleymt bakpokanum okkar með lambhúshettum undir hjálmana, hönskum, aukasokkum og skíðagleraugum heima. Ég varð frekar svekkt og sá fyrir mér að við þyrftum að hanga á barnum allan daginn því að það er vanalega mjög kalt á Jay Peak. Heppnin var hins vegar með okkur í þetta skiptið því að það var bara þetta fína veður. Pétur gat fengið lánaða hanska hjá Scott og við þurftum því bara að kaupa ódýra hanska handa mér og sólgleraugu handa Pétri en það er sko ekki tekin nein áhætta varðandi augun hans Péturs eftir slæma reynslu í Frakklandi. Hann var svaka töffari með svört speglagleraugu með gulllituðum þrumum á hliðunum...
Um kvöldið fórum við svo út að borða með Gillian og Martin á veitingastað í hverfinu þeirra og enduðum svo á bar þar rétt hjá. Þau búa í mjög svo skemmtilegu hverfi í frönskumælandi hlutanum sem er mjög vinsælt hjá ungu fólki og þar er fullt af veitingastöðum og börum. Eins og oft áður ræddum við mikið um ólíka menningu og muninn á franskri og enskri menningu. Gillian er orðin hundleið á frönskumælandi fólki sem lítur niður á enskumælandi fólk og finnst allt í lagi að rakka þá ensku niður því að þeir tilheyra meirihlutanum. Martin finnst aftur á móti að allir Kanadabúar ættu að geta talað frönsku og að það sé ósanngjarnt að enskar hljómsveitir fái meiri athygli en franskar... Morguninn eftir vöknuðum við svo snemma til að fara með G&M í IKEA því að þau voru með bílaleigubíl um morguninn. Við Pétur keyptum sjónvarpsskáp og tvo stóla þannig að loksins er íbúðin okkar orðin tilbúin og við erum bara mjög ánægð með þetta. Nú getum við líka boðið fleirum en einum í mat.
Við keyptum okkur miða á tónleika með hljómsveitinni The Arcade Fire sem er héðan frá Montréal og verða í lok apríl. Ég hlakka mikið til að sjá þá og vona að það komi fleiri skemmtileg bönd hingað á næstunni.
0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home