Í sól og sumaryl...
ég get svo svarið það að ég er búin að vera í sólbaði úti á svölum í allan dag og það er bókstaflega stuttbuxnaveður úti! Montréalistar eru reyndar svolítið eins og Íslendingar, um leið hitinn fer upp fyrir 15 stig eru allir komnir í stuttbuxur og sandala. En ég er alveg með það á hreinu að það var mun heitara en það á svölunum okkar í dag, jibbí!
Pétur talar frá Montreal aldrei þessu vant: Vildi bara minnast á það að um leið og sólin fer að skína þá eru Montrealar ekkert ósvipaðir Íslendingum, allir komnir í stuðbuxur og scandala.... Allt er í góðu lagi, allt á fullu í skólanum, önnin er að klárast þannig að ég er á kafi í ritgerðarskriftum og styrkjarumsóknum fyrir fyrirhugaða vettvangsrannsókn mína í sumar. Hér i Montreal hafa háskóladeildir verið í verkfalli síðustu mánuði, en skólinn sem ég er í hefur að mínu mati ekki staðið sig nógu vel í þeim málum. Stjórn Quebec-fylkis hefur boðað mikinn niðurskurð í styrkjum til háskólanema, sem háskólanemar eru allt annað en sáttir við. McGill háskóli er hinsvegar "kapítalískari" en aðrir háskólar í fylkinu og hafa menn þar á bæ verið tregir við að fara í verkfall. Við í mannfræðideildinni vorum við það að fara í verkfall fyrir rúmlega viku síðan en þá komst á samkomulag milli Quebec stjórnar og hinna hundruð þúsunda nemenda sem voru í verkfalli (ekki voru allir sáttir við samningana), engir McGill nemar þó. Á fundunum sem við í mannfræðideldinni héldum komst ég að því að það var ekkert grín að fara í verkfall, það er í rauninni ekki hægt að fara í verkfall nema þá að vinna með kerfinu, þannig að ef maður vill mótmæla kerfinu verður maður að vinna með kerfinu sem meikar engan sens. Við í mannfræðideildinni gátum ekki farið í verkfall þar sem við vorum ekki í verkalýðsfélagi og prófessorar við deildina gátu heldur ekki aðstoðað okkur þar sem þeir eru ekki heldur í verkalýsfélagi. Ég held satt best að segja að við hefðum bara átt að gefa sk.. í allar reglur um verkföll, þar sem við höfðum engan rétt til að gera neitt hvort eð er. Sem betur fer eru frönsku háskólarnir lýðræðislegri og kjarkmeiri en McGill, þeir hafa gert það að verkum að börn vina okkar geta stundað háskólanám án þess að fara á hausinn, eins og hefur gerst víða sunnan við landamærin, í ríkjum Bandaríkjanna.
Ein vinkona okkar vinnur hjá stórri fatakeðju hér í Montreal, hún er ekki í verkalýðsfélagi og ekki með neinn samning við fyrirtækið, sem gerir það að verkum að það er hægt að reka hana án nokkurs fyrirvara (voðalega hentugt!). Hún er á lélegum launum og hún veit ekki hvort hún heldur vinnunni fyrr en hún sér vaktatöflu næstu viku sem birt er á fimmtudögum. Hvað gerist þegar einstæð móðir er látin fara, hvernig á hún að borga leigu, mat o.s.frv?
Hér í Norður Ameríku höfuðstöðvum frjálshyggjunnar ráða stórfyrirtækin, ég yrði mjög þakklátur ef þið vinir og vandamenn og Íslendingar allir sæuð til þess að á Íslandi myndi kapítalisminn aldrei ganga svo útí öfgar eins og hér, þá sérstaklega sunnan við landamærin, að atvinnuöryggið væri mesta lagi ein vika í senn. Í mínum huga er það augljóst að við almenningur hugsum meira um okkar hagsmuni en stórfyrirtæki sem hefur ekkert annað að markmiði en gróða hluthafanna. Ég var bæði móðgaður og hissa þegar ég heyrði að á tíma kennaraverkfallsins væru menn sem héldu því fram að verkalýðsfélög og verkföll væru börn síns tíma. Hugsiði ykkur um, hvað er verið að segja með svona alhæfingum. Eru gróðasjónarmið stórfyrirtækja og samteypna mikilvægari en velferð almennings? Eigum við að hafa það að markmiði eins og ákveðnir talsmenn frjálshyggjunnar hafa lagt til, að gera ísland að ríkasta landi í heimi eða eigum við að stefna að því að gera kjör íslensku þjóðarinnar þau bestu í heimi? Eins og er eru kjör íslensku þjóðarinnar þau næstbestu í heimi á eftir Noregi samkvæmt Sameinuðu Þjóðunum, en við erum alls ekki ríkasta land í heimi. Skiptir það nokkru máli? Skipta kjör manna ekki meira máli en ríkidæmi landsins sem þeir búa í, sem oft á tíðum skiptist á fáar hendur?
Jafnvægi verður að vera á milli atvinnurekenda og launþega til þess að kom í veg fyrir misnotkun. Ekki vanmeta verkfallsréttinn, hann er lykilatriði í lýðræðisríki!

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home