föstudagur, mars 11, 2005

Föstudagur kl. 16:23...

Vá, þetta er ekkert smá erfitt, síðasti klukkutíminn... Allir eru í stuði því að við vinnufélagarnir erum að fara á Happy Hour á eftir og enginn er í stuði til að vinna enda bara frekar rólegt eins og er. Meira að segja hin ofvirka yfirkona mín nennir ekki að vinna og segir okkur bara að geyma stór verkefni til mánudagsins. Mig langar eiginlega mest að standa aðeins upp og öskra og hoppa, er með svona kíttling í maganum. Við Pétur förum ekki á snjóbretti þessa helgina, í kvöld förum við í partýið til Ara og Pétur þarf að læra um helgina. Væri alveg til í að skreppa snöggvast á Klakann í kvöld og kíkja í Idol-partý. Ég er aðeins búin að sjá á netinu og líst bara svaka vel á þessar stelpur sem eru eftir. Hér fylgist ég með American Idol og svo fer Canadian Idol bráðum að byrja... Idol skædol.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com