þriðjudagur, apríl 12, 2005

Ég setti örfáar myndir inn á MYNDIR 2005 í albúm sem heitir mars en ég sé að við verðum að vera miklu duglegri að taka myndir, það hlýtur að koma með vorinu. Hér er búið að vera ótrúlega gott veður en tvo síðustu daga hefur kólnað aðeins aftur og nú er líklega um 5-10 stiga hiti.

Á föstudaginn fórum við út að borða á mexíkanskan stað í tilefni af afmæli Claudine, sem við kynntumst fyrst eftir að við komum en höfum lítið samband haft við síðan. Hún er í fornleifafræði sem er hluti af mannfræðideildinni. Hún bauð líka Casey sem er í mannfræði og Ben manninum hennar sem eru frá USA og Arönzu frá Argentínu sem er eini annar mastersneminn fyrir utan Pétur, hin eru öll í doktorsnámi. Casey er frekar róttæk eins og mannfræðingar eru oft og hún er að sjálfsögðu hundóánægð með Bush og segir að það sé alltaf léttir að koma yfir landamærin til Kanada. Hún er líka mjög meðvituð um neysluna sem á sér stað í okkar samfélagi og Ben sagði okkur frá því að hún væri alltaf að koma sinni íhaldssömu fjölskyldu á óvart, til dæmis harðneitaði hún að segja hvað hún vildi í afmælisgjöf og sagðist bara ekki vilja neitt! Það er alltaf svo gaman þegar fólk með ólíkan bakgrunn hittist, til dæmis var Ben steinhissa þegar Aranza sagði honum að "gringo" (orð sem latino americans nota um hvíta bandaríkjamenn) væri neikvætt og hálfgerð móðgun. Hann sagðist alltaf hafa verið svo glaður þegar einhver kallaði hann gringo og gaf öllum "five" hægri-vinstri þegar þetta var sagt við hann þegar hann var að ferðast í Mexíkó... Eftir matinn fórum við svo á klúbb og dönskuðum fram eftir nóttu, meira að segja Pétur steig nokkur spor.

Á sunnudaginn fór ég í síðustu snjóbrettaferðina í vetur til Mont Tremblant sem er eitt stærsta skíðasvæðið hér í Québec. Pétur komst ekki þar sem að hann er að skrifa ritgerð en ég renndi mér með Scott, Þórhildi og Claire franskri vinkonu hennar. Veðrið var búið að vera svo gott að ég var eiginlega búin að gera ráð fyrir því að snjórinn væri allur farinn og að það yrði hætt við ferðina en um helmingurinn af brautunum var enn opinn og færið bara ágætt. Það var alveg geggjað veður og við nýttum daginn vel þannig að ég var alveg dauðþreytt eftir daginn en samt bara svona þægilega þreytt sko. Mörgum hérna finnst Mont Tremblant ansi snobbaður staður og allt er mun dýrara þar en á öðrum skíðasvæðum og svo eru húsin í bænum öll svona skrautleg og minna pínu á Disney land. Ég verð nú samt að segja það að það blundar alveg nægilega mikið snobb undir yfirborðinu hjá mér til þess að ég fíli svona stað, þannig að mér fannst þetta bara soldið sætt.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com