New York, New York
Við erum að fara til New York seinni partinn í maí með Martin, Gillian og Juliu, jibbí! Þá er löng helgi, frí á mánudeginum og ég ætla að taka mér frí í vinnunni á föstudeginum líka. Við erum búin að bjóða þeim í mat á morgun til að skipuleggja ferðina. Martin og Gillian eru nú þegar búin að vera mjög dugleg að kanna alla möguleika því að við ætlum að reyna að gera þetta eins og ódýrt og hugsast getur. Þau heyrðu af einhverri rútu sem fer beint úr Kínahverfinu hér í Montréal (sem er pínulítið) í China Town í NY. Þau ákváðu því að skella sér á ferðaskrifstofuna í Kínahverfinu og þar fór fólkið bara að hlægja þegar það sá þau því að það er víst aðallega fólk af asísku bergi brotið sem tekur þessa rútu. Þau voru samt mjög almennileg og rútan er ekki dýr en málið er að það er líka innifalin gisting í China Town og rútuferð um borgina en við höfum engan áhuga á því. Svo heyrðu þau af annarri rútu sem fer beint frá Outremont hér í Montréal, þar sem býr mikið af strangtrúuðum gyðingum, til Brooklyn. Ég hef alveg gleymt að segja frá því þegar við fórum í göngutúr í þessu hverfi, það var alveg eins og að fara lengst aftur í tímann. Karlarnir eru með svartar skikkjur, hatta og slöngulokka í hliðunum og Konurnar í síðum pilsum, hvítum sokkabuxum og fínum skóm og börnin eru svona mini-útgáfur af fullorðna fólkinu. Í þessari rútu eru konurnar með börnin sér og karlarnir sér og svo er bara Kosher-fæði og síðast en ekki síst þá er skilyrði að vera sæmilega klæddur, allavega má ekki sjást í neitt bert hold... Mér fyndist nú pínu fyndið að taka þessa rútu en það gæti verið að við förum bara á bílaleigubíl því að það er jafnvel ódýrara. Reyndar er Martin greyið ekkert spenntur fyrir að keyra í NY og finna stæði og svoleiðis sem ég skil mjög vel. Þetta kemur allt í ljós, vonandi á morgun!
Í fyrradag vorum við Pétur í göngutúr í götunni okkar og Pétur benti á New York leigubíl sem var lagt við eina hliðargötuna. Svo fór hann eitthvað að benda á skilti sem á stóð “SET” en ég tók ekki eftir neinu en þegar við litum betur í kringum okkur tókum við eftir að það var fullt af stórum trukkum lagt við götuna okkar svolítið fyrir ofan þar sem við búum en þarna er greinilega verið að taka kvikmynd. Það er víst mjög algengt að bandarískar kvikmyndir séu teknar að hluta til í Montréal því að það er svo ódýrt. Daginn eftir hitti Pétur svo eina stelpu úr snjóbrettaklúbbnum sem á heima við hliðina á þar sem er verið að taka og hún sagðist hafa séð Miru Sorvino og Donald Sutherland labba í götunni. Hmmm, það er greinilega frægt fólk annars staðar en á Íslandi...
Vá hvað ég er búin að vera dugleg að skrifa undanfarið!!!

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home