Þetta var örugglega rólegasta helgi sem ég hef átt í mörg, mörg ár. Ég hitti varla hræðu fyrir utan Pétur. Hann var á fullu að fara yfir próf og þurfti svo að skrifa eitthvað proposal fyrir rannsóknina sína eftir það en hann er að fara að skila því á eftir og þá getur hann loksins fengið langþráða pásu. Hann er búinn að vera rosalega duglegur og ég er mjög stolt af honum! Ég reyndi nú aðeins að hjálpa honum með proposalið en veit ekki hvað það kom mikið að gagni. Annars hékk ég bara í leti og las Lord of the Flies sem Pétur hefur hvatt mig til að lesa síðan ég kynntist honum. Hún var ágæt en ég held að ég hefði fílað hana betur ef ég væri strákur á unglingsaldri...
Annars lenti ég reyndar í smá ævintýri á laugardaginn. Ég fór í göngutúr upp á fjall í rigningunni og endaði með að festast uppi á f... fjallinu! Ég get svo svarið það, mig langaði ekki að fara sömu leið niður og ég kom en það var verið að gera við einn stigann sem ég hefði annars farið og ég hringsólaði í næstum tvo klukkutíma þar til ég endaði með að klöngrast niður einhverja snarbratta hlíð. Ég var nú orðin svolítið subbuleg eftir þetta en stuttu síðar rann ég beint á rassgatið eins og í bíómyndunum þegar fólk stígur á bananhýði og labbaði moldug upp fyrir haus síðasta spottann skellihlæjandi og fólk hefur örugglega haldið að ég væri eitthvað klikk. Í gær fór ég svo út að skokka, geðveikt dugleg, en það á að vera reglulegur viðburður í sumar, hmmm...
Hey, haldiði að ég hafi ekki keypt mér mitt fyrsta hrukkukrem í vikunni sem leið enda kerlingin orðin svolítið krumpuð fyrir aldur fram vegna óvarlegra sólbaða á yngri árum... Það fynda er hins vegar að í sömu búðarferð keypti ég bólukrem fyrir eiginmanninn sem er ennþá að fá unglingabólur... En svei mér þá, honum er farið að vaxa smá skegg og þarf orðið að raka sig ansi reglulega, hann er að stækka strákurinn!

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home