Matarboð
Nú er aftur komið sumarveður og allir eru glaðir. Við tókum okkur til í síðustu viku og borguðum til baka tvö matarboð sem við “skulduðum” en það var auðvitað bara mjög skemmtilegt. Á fimmtudaginn (05-05-05) buðum við Martin, Gillian og Juliu í mexíkanskan mat í tilefni af því að það var “cinqo de mayo” (hef ekki hugmynd um hvort að þetta er rétt skrifað...), þjóðhátíðardagur mexíkana. Það var líka mjög góð lausn því að Julia er grænmetisæta og við Pétur vorum búin að klóra okkur í hausnum yfir matreiðslubókunum í þónokkurn tíma áður en okkur datt þetta í hug. Grænmetisréttir eru nefnilega ekki okkar sterkasta hlið. Við spjölluðum og drukkum Corona og skipulögðum New York-ferð og þau fóru ekki fyrr en seint um nóttina en ég mætti samt galvösk í vinnuna klukkan átta morguninn eftir, ekki svo gömul eftir allt saman!
Á laugardaginn buðum við svo Guðrúnu og Mathieu og Fabrice hinum franska. Við elduðum fondue, kjöt-, osta- og ávaxta/súkkulaði sem var bara nokkuð gott. Guðrún var eiginlega að fagna því að hún vann Austur-Kanadamótið í skylmingum annað árið í röð, ekki slæmt það. Við skemmtum okkur mjög vel og þau fóru líka heim seint og um síðir.
Á sunnudaginn fórum við svo í pikknikk með nokkrum vinum okkar upp á fjall. Toppurinn á deginum var samt þegar við fórum til herra Skattmanns sem sagði okkur að við ættum að fá háar fjárhæðir til baka frá skattinum en ég hafði einmitt reiknað út að við þyrftum að borga slatta af peningum... Hmmm, ég hugsa að ég láti bara kanadísku skattaskýrslurnar vera og feli einhverjum sem er sérfróðari á því sviði að sjá um þetta héðan í frá. Þetta létti sem sagt heilmiklum fjárhagsáhyggjum af mér í bili en eins og flestir vita þá verð ég fljót að finna mér eitthvað annað til að hafa áhyggjur af í staðin...
Læt þetta duga í bili...

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home