Jæja, loksins kemur ferðasagan frá Stóra Eplinu
Fimmtudagur
Við lögðum af stað um kl. 7 á fimmtudeginum til New York en vorum ekki komin þangað fyrr en klukkan 5 morguninn eftir enda vorum við ekki beinlínis að flýta okkur á leiðinni. Við Pétur töfðum líka hópinn svolítið á landamærunum því að við þurftum að fá nýtt visa og auðvitað láta taka af okkur fingraför og myndir... Við Pétur vorum hjá Margréti frænku hans sem tók alveg svakalega vel á móti okkur. Hún býr í Brooklyn svolítið frá Manhattan en það er Subway rétt hjá henni sem fer beina leið niður í “bæ”. Martin, Gillian og Julia voru búin að leigja íbúð í Brooklyn af einhverri stelpu sem þau fundu á netinu en hún ætlaði að skilja lykilinn eftir hjá frænku hans Péturs. Þegar við komum var hins vegar enginn lykill og stelpan hafði greinilega svikið þau, frekar lélegt að láta fólk keyra til NY um miðja nótt vitandi að það hefði engan stað til að vera á. Þetta bjargaðist hins vegar því að þau fengu að sofa á gólfinu í herberginu okkar, ég vil ekki einu sinni hugsa til þess ef við hefðum öll ætlað að treysta á svoleiðis gistingu. Daginn eftir kíktu þau svo á tölvupóstinn sinn og þá hafði stelpufíflið skrifað þeim og sagt að það væri bara allt of mikið vesen fyrir hana að koma lyklinum til frænku hans Péturs og að þau ættu að reyna að kíkja við klukkan 8 um morguninn (þegar við vorum öll steinsofandi). Hún hafði haft næstum viku til að segja þeim þetta en í staðin skrifaði hún kl. 23:30 á fimmtudeginum en þau höfðu einmitt hringt í hana á leiðinni rétt fyrir þann tíma og hún ekki svarað þannig að þau skildu eftir skilaboð og hún átti alveg að vita að þau yrðu seint á ferðinni. Allavega þá ákváðu þau að vera í íbúðinni seinni þrjár næturnar þar sem að þau höfðu ekki um margt að velja þrátt fyrir að vera hundfúl út í stelpuna. Íbúðin var víst frekar tómleg kjallaraíbúð með ca. 180cm lofthæð sem hún borgar 1100 dollara fyrir á mánuði...
Föstudagur
Við drifum okkur á fætur klukkan 11 á föstudeginum og fengum ljúffengan morgunverð hjá Margréti og fórum svo beint niður á Manhattan. Föstudagurinn fór að mestu í að kíkja á staði sem Ari vinur okkar hafði sagt okkur frá en hann hefur búið í New York. Fyrst kíktum við á bókabúð/kaffihús sem hann mælti með og svo fórum við á írskan bar sem var opnaður um miðja 19. öld sem heitir McSorley´s. Þetta er alveg frábær bar þar sem eru upphaflegar innréttingar, alls konar gamalt dót uppi á vegg og þjónarnir eru í svipuðum skyrtum og hafa verið notaðar frá upphafi. Þeir bjóða bara upp á ljósan eða dökkan heimabruggaðan bjór og maður fær tvö glös fyrir 4 dollara sem þykir bara nokkuð gott í NY. Við Pétur fengum okkur líka alveg delicious fish and chips. Þessi staður peppaði okkur heldur betur upp eftir vonbrigði og þreytu næturinnar, mæli með honum. Stelpuskjátan með íbúðina hringdi meðan við vorum á barnum og Gilli Chilli og Marty Smarty drifu sig af stað til að hitta hana og fá lykilinn. Á meðan röltum við Pétur um með Juliu. Um kvöldið fórum við svo út að borða á indverskan veitingastað við 1st Avenue sem Ari hafði mælt með en það eru nokkrir pínulitlir staðir vel skreyttir jólaseríum alveg í kös og það eru innkastarar við hverjar dyr sem keppast um að ná í viðskiptavinina. Stemningin var mjög skemmtileg og maturinn góður og ekki spillti fyrir að maturinn fyrir okkur fimm kostaði aðeins $38 plús tips og svo mátti maður koma með eigið vín. Eftir matinn skelltum við okkur svo á uppáhaldsbarinn hans Ara sem er við eina heitustu götuna í NY í dag að því er okkur er sagt, Ludlow Street og heitir Max Fisch. Þar skáluðum við fyrir Ara en drifum okkur heim milli kl. 2 og 3 enda ansi þreytt eftir daginn.
Laugardagur
Á laugardeginum ákváðum við að gerast sannir túristar og gengum yfir Brooklyn Bridge en það er mjög flott sjónarhorn á borgina og kíktum á Ground 0 sem var mjög óhugnanlegt og það er augljóslega gap þar sem turnarnir voru. Svo fórum við í siglingu á ánni fram hjá frelsisstyttunni sem mér finnst alveg æðisleg og sáum margt fleira og heyrðum því að við vorum með alveg svakalega skemmtilegan guide á siglingunni. Um kvöldið kíktum við svo á Times Square sem er náttúrulega alveg geggjað en samt varð ég fyrir smá vonbrigðum, það var umferð allt í kring og ég hafði einhvern veginn séð þetta allt öðruvísi fyrir mér. Þar átum við á einhverjum amerískum túristastað sem féll ekki beint í kramið hjá okkar sparsömu arty farty vinum... Við Pétur urðum stundum svolítið vör við það í ferðinni að við höfum svolítið annað verðskyn heldur en þau enda lítil dekurbörn frá Íslandi sem vita ekki hvað það er að spara, allra síst þegar að það kemur að mat... Rétt hjá Times Square náðum við svo að sjá eitt af því sem er alveg must að sjá í New York og stór partur af lífi borgarinnar. Jú einmitt haldiði ekki að við höfum rekist á hana Rósu rottu vel í holdum og fráa á fæti mér til mikillar ánægju! Ég var reyndar alveg búin að búa mig undir þetta stefnumót og stóð mig alveg eins og hetja, a.m.k. að eigin mati. Gillian labbaði fremst og sá Rósu og vinkonu hennar skjótast yfir gangstétina og undir eitthvað vegavinnugrindverk og öskraði upp yfir sig þegar hún sá þær. Þá sá ég Rósu troða sér undir grindverkið, öskraði, sneri mér við og hljóp á harðaspretti í hina áttina. Pétur þorði ekki annað en að hlaupa á eftir mér því að hann hélt að ég myndi hlaupa beint í veg fyrir bílana en ég hélt “ró” minni og stoppaði á horninu og hljóp svo til baka með Pétri á miðri götunni því að mér fannst það skárri tilhugsun að verða fyrir bíl en að mæta Rósu á þröngri gangstéttinni... Við vorum alveg búin að ákveða að djamma á laugardagskvöldinu þar sem við vorum frekar slöpp á föstudeginum en einhvern veginn vorum við alveg búin eftir daginn og fórum bara heim að sofa. Það þýðir víst ekkert að ætla að labba sig upp að hnjám á daginn og skoða allt og djamma um kvöldið þegar maður er orðinn svona gamall...
Sunnudagur
Á sunnudeginum var rigning og við ákváðum að skella okkur á MoMA nýlistasafnið. Ég var pínu treg til að fara því að ég hef eiginlega ekki farið á listasýningu síðan ég var lítil og mamma tók mig með sér og ég var hálfhrædd um að ég yrði svakalega óþolinmóð eftir 20 mínútur en það er eiginlega nauðsynlegt að kíkja á allavega eitt safn þegar maður er í New York og ég sá sko ekki eftir því að fara. Þarna eru myndir eftir marga þekkta gaura og ég verð bara að viðurkenna að það kom mér á óvart hvað ég þekkti marga af þeim, var eiginlega búin að gleyma að ég hafði lært smá listasögu í Frakklandi og hef alveg smá áhuga á svona list eftir allt saman... Við sáum verk eftir Van Gogh, Klimt, Matisse, Dali, Picasso, Andy Warhol og marga aðra fræga listamenn. Eftir safnið löbbuðum við aðeins í Central Park sem er alveg ótrúlega stór en eitt af því sem kom okkur mest á óvart við New York er hvað það er mikið af trjám þar. Við sáum til dæmis ekkert í borgina fyrr en við vorum komin inn í hana og ótrúlega litla ljósmengun þegar við keyrðum þangað. Svo fórum við í Empire State Building og skoðuðum útsýnið í myrkri og borðuðum seint um kvöldið í Little Italy.
Mánudagur
Þegar við vorum að skipuleggja mánudaginn þá kom í ljós að allir voru með einhverja leynda draumóra um skókaup þannig að við ákváðum að kíkja niður á Manhattan í skóleiðangur. Við enduðum auðvitað öll með því að kaupa okkur skó nema Julia en það var nú eiginlega það eina sem var spanderað í í þessari ferð en ég hugsa að það sé algerlega okkar hagsýnu vinum að þakka... Mér varð hugsað til Heiðar sem segir að það sé mjög mikilvægt að kaupa sér skó í New York, við klikkuðum allavega ekki á því þó að við höfum bara keypt okkur eitt par á mann. Eftir skóleiðangurinn fórum við svo og kvöddum Margréti og náðum í dótið okkar og keyrðum svo niður á Coney Island en Juliu hafði dreymt um að fara þangað. Fyrir þá sem ekki vita þá er Coney Island í útjaðri Brooklyn við sjóinn og þar er tívolí sem var mjög vinsælt fyrir einhverjum áratugum síðan en seinna minnkuðu vinsældirnar og svæðið lagðist í hálfgerðan dvala en samt hefur það verið notað í mörgum bíómyndum. Veðrið var fínt og við fengum okkur smá göngutúr fyrir langa bílferð heim á leið. Þetta var alveg frábær helgi og við erum öll ákveðin í að fara aftur til New York seinna en það er líka alltaf gott að koma heim til sín.
THE END

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home