þriðjudagur, ágúst 02, 2005

Það er greinilegt að tveggja vikna sumarfrí er ekki nóg fyrir mig enda vön að fá miklu lengra frí. Marcus, nágranni minn og vinnufélagi ætlar hins vegar ekki að taka neitt frí, kannski langa helgi hér og þar og honum finnst það ekkert mál. Hann segist lítið sem ekkert hafa unnið á síðasta ári og þegar ég fór að hugsa út í það þá gerði ég það ekki heldur, allavega í fjóra mánuði þegar ég var úti í Malaví. Er það nú aumingjaskapur!

Þetta var alger rólegheitahelgi. Ég horfði á DVD bæði á föstudags- og laugardagskvöld, frekar sorglegt en það var bara fínt. Á laugardaginn dreif ég mig loksins út að skokka uppi í fjalli eftir að hafa staðið lengi fyrir framan spegilinn og spurt sjálfa mig hvort ég gæti virkilega látið sjá mig í ljótu íþróttaskónum mínum, meiri gelgjan! Svo er ég svo vitlaus að þegar ég loksins fer og er náttúrulega í engu formi þá píni ég mig þar til að ég verð fjólublá í framan, kemst í einhvern svona endorfín ofvirknisgír. Svo fór ég í langan göngutúr eftir það og í gær gat ég varla gengið, mjöðmin alveg að fara með mig...

Í göngutúrnum gekk ég í gegnum einn mjög skemmtilegan garð en á leiðinni mætti ég manni sem fór að segja mér upp úr þurru að québeckískir karlmenn hafi samband við kínverskar konur á netinu. Ég var ekki alveg að fatta hvað maðurinn átti við með þessu og sagði hikandi: “Oui?” og hann leit á mig og sagði í hneykslunartón: “Já, ótrúlegt! Sjáðu t.d. þarna rétt fyrir framan þig er maður frá Québec með kínverskri konu!” Ég áttaði mig þá á að ég átti ekkert vantalað við þennan mann og labbaði bara í burtu. Mér finnst bara alveg ótrúlegt að manninum hafi þótt sjálfsagt að ég væri sammála honum. Fyrir utan það þá finnst mér mun líklegra að þessi kona hafi verið héðan frá Québec heldur en frá Kína, það er fullt af fólki hér af asískum uppruna.

Á sunnudaginn fór ég á Jean Talon markaðinn og svo að horfa á Gillian keppa í dragon boat race en það eru svona bátar með u.þ.b. 20 manns sem sitja tveir og tveir með eina ár hver. Hún og flestar stelpurnar í hennar liði eru byrjendur en þeim gekk samt ágætlega. Keppnin var haldin á einni eyjunni úti í fljótinu en þar var líka heimsmeistaramótið í sundi haldið og því mikið um að vera. Ég lá bara í sólbaði og slappaði af þar til kom að liðinu hennar Gillian og fór svo heim eftir það.

Í gær var þjóðhátíðardagur Sviss og í tilefni af því bauð mamma hennar Sybil, kærustunnar hans Ari okkur í garðveislu, hún er svissnesk en hefur búið hérna síðan Sybil var 10-12 ára. Það var boðið upp á ekta raclette, en þá er tekið heilt stykki af raclette-osti og skorið í tvennt og grillað og svo var grillaður kjúklingur og pylsur og fullt af grænmeti. Svo voru alveg geggjaðir eftirréttir. Þetta var alveg sjúkt og ég hef ekki étið jafnmikið í langan tíma. Eftir matinn var svo kveikt á luktum í garðinum og sprengd nokkur blys/flugeldar og mamman, stjúppabbinn og hippavinir þeirra spiluðu á gítar og sungu.

Læt þetta nægja í bili. Til hamingju með afmælið Kristján Ari!

Dóra

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com