föstudagur, júlí 29, 2005

Ég hef svo sem ekkert sérstakt að segja. Fór á Thomson House á þriðjudaginn og hitti nokkra mannfræðinga sem höfðu verið að spila soft ball. Það var fínt þó að ég hefði voða lítið til málanna að leggja varðandi boltann en þau voru afskaplega stollt yfir að hafa unnið leikinn þrátt fyrir að vera bara sex að spila. Þetta gengur aðeins betur en fótboltinn en mannfræðiliðið hefur skíttapað nokkurn veginn hverjum einasta leik í fótboltanum...

Í gær kíkti ég niður í bæ því að nú er frönskumælandi hátíð í gangi (Les Francofolies de Montréal) og í gær var tribjút til einnar vinsælustu hljómsveit Québec fyrr og síðar sem var að halda upp á þrítugsafmælið sitt. Það var gjörsamlega pakkað niðri í bæ og mikil stemning og mjög gaman að sjá fólk á öllum aldri syngja með lögunum þó að þetta væri kannski ekki alveg minn tebolli.

Ég hef mikið verið að spá undanfarið í alls konar hluti. Hryðjuverk í London og innrás í Írak, virkjanaframkvæmdir við Kárahnjúka og mótmæli tengd þeim, rasisma á Íslandi og víðar og fleira og fleira... En ég hef bara ekki kjark í mér til að fjalla um það á netinu. Ég er alltaf svo hrædd um að einhver svari mér sem er miklu betur að sér en ég og að ég komi upp um fáfræði mína. Ég hef verið að lesa pistla Egils Helgasonar á visi.is, sem ég er stundum sammála og stundum alls ekki sammála og ég tek eftir því að fókið sem er að kommenta þar veit oft ekkert í sinn haus, sko ekki allir, bara sumir. Það er eiginlega bara neyðarlegt að lesa það, þröngsýnin og barnaskapurinn er svo yfirgengilegur og svo til að toppa þetta allt saman fer fólk að setja út á hvort annað og talar um hvert annað af þvílíku virðingarleysi eins og allir sem hafa ekki nákvæmlega sömu skoðun og það hefur sjálft séu bara hálfvitar. Ég verð að segja að ég er svo mikill klofhugi eða kannki bara diplómat til að nota jákvæðara orð, að ég er aldrei 100% viss um að mín skoðun sé “rétt” og oft hef ég varla skoðun því að ég skil svo vel báða aðila. Það getur verið ansi snúið að koma þannig skoðunum niður á blað. En samt þori ég ekki að tjá mig... svo að þetta blogg verður enn um sinn bara svona eins og dagbók til að leyfa vinum og vandamönnum að fylgjast með manni á meðan maður býr í útlöndum, stundum hundleiðinlegt en mjög fjölskylduvænt.

Bless í bili

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com