Ætlaði bara rétt að láta vita af mér... Helgin reyndist bara hin fínasta, stundum er ágætt að taka því bara rólega en ég passaði mig náttúrulega á því að hafa þetta ekki allt of rólegt. Martin og Gillian hringdu í mig á föstudaginn þegar ég var að fara að huga að því að hitta vinnufélagana og sögðust ætla að kíkja á Air Guitar keppni niðri í bæ en nú er einmitt festival í gangi sem heitir Juste pour rire/Just for Laughs (ásamt einu sem heitir Les Nuits d´Afrique og örugglega milljón öðrum litlum festivölum...). Við höfðum einmitt reynt að komast á slíka keppni í New York en tókst ekki þannig að ég var alveg til í að kíkja og þetta var líka mjög skemmtilegt. Það var nú greinilega einhver klíka sem var að velja í sætin því að þeir sem tóku sig alvarlegast og voru ófyndnastir unnu. Toppurinn var eiginlega þegar einn fimm ára stökk inn á sviðið og tók eitt lag á loftgítarinn sinn, hann var alveg magnaður með þvílíka takta. Eftir þetta fór ég svo að hitta vinnufélagana, við vorum nú bara fimm og sátum og spjölluðum og þau skelltu í sig heilli flösku af tequila en eins og margir vita þá læt ég ekki slíkan viðbjóð inn fyrir mínar varir!
Á laugardeginum kíkti ég í Stampede Brunch að það er haldið af fólki frá Alberta í tilefni af því að það var kúrekahátíð í Calgary og boðið var upp á amerískar pönnsur með sírópi og grillaðar pylsur. Svo spiluðu nokkrar hljómsveitir blue grass músík í kúrekastíl og svei mér þá ef það var bara ekki asni flott. Ég er sko ekki að tala um svona country à la Dolly Parton og fleiri sem ég kann ekki að nefna. Við vorum þarna mestallan daginn og svo eyddi ég restinni af helginni ein með sjálfri mér og keypti langþráða viftu sem hefur bjargað mér síðustu næturnar. Svo las ég mjög góða bók sem heitir The Kite Runner og fjallar í mjög stuttu máli um mann sem elst upp í Afganistan og flyst svo til Bandaríkjanna á unglingsaldri þegar Rússar eru búnir að hernema landið og fer svo aftur til baka á fullorðinsárum, ég mæli sko alveg með henni.
Í gærmorgun vaknaði ég klukkan 4:30 við það að brunabjallan fór af stað og þurfti að rjúka út á náttfötunum með stírurnar í augunum. Það kom í ljós að einhver hafði kveikt í rusli í húsasundinu bak við bygginguna og það myndaðist heilmikill reykur sem fór inn í bygginguna okkar. Eftir tæplega tveggja klukkustunda bið var okkur hleypt inn aftur en lyfturnar virkuðu ekki eftir að slökkviliðsmennirnir höfðu notað þær þannig að ég varð að gjöra svo vel að labba upp á 19. hæð upp stigaganginn sem var enn angandi af reykjarsvælu. Ég náði svo að leggja mig í hálftíma áður en ég fór í vinnuna og var frekar mygluð allan daginn.
Það borgaði sig greinilega að bera sig illa og kvarta aðeins í síðasta bloggi því að ég hef fengið nokkur skemmtileg símtöl frá Íslandi. Hef samt enga ástæðu til að kvarta, gæti alveg verið duglegri við það að hafa samband við fólk sjálf og ætla að reyna að bæta úr því... Það var sérstaklega skemmtilegt að frétta að Elli og Anna Lilja eru að fara í skóla til Ottawa, sem er í 1,5 klukkutíma akstursfjarlægð frá Montréal, næsta vetur. Þau koma út 17. ágúst og ég ætla alveg pottþétt að fara að heimsækja þau og vona að þau komi líka í heimsókn til mín.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home