Fín helgi
Þetta var fín helgi. Á föstudaginn fór ég í partý til Rémy. Ég mætti upp úr klukkan 9 sem þykir seint á kanadískan mælikvarða en allir vita að partýin hjá Rémy byrja seint og það var enginn af mannfræðingur mættur og ég var hálffeimin og þorði ekki að tala við vini hans Rémys sem ég þekki ekki. En sem betur fer mættu flestir fljótlega eftir það og þetta var fínt partý.
Á laugardaginn var svo eins árs brúðkaupsafmæli okkar Péturs og ég fór út að borða með Gillian og Martin á spænskan tapas-stað í tilefni dagsins. Ég tók Pappírs-Pésa með mér og hann vakti mikla lukku þrátt fyrir að húkti bara úti í horni og sagði mest lítið allt kvöldið... Maturinn var mjög góður og eftir hann fórum við á stað sem heitir Laika og er fyrsti staðurinn sem við Pétur fórum á í Montréal og fengum okkur brunch.
Á sunnudaginn fór ég svo enn og aftur með G&M á Jean Talon markaðinn þar sem er svakalegt úrval af ferskum ávöxtum og grænmeti og svo er þarna líka kjötbúð, fiskibúð, pastabúð, ostabúð, bakarí og margt fleira. Alveg geggjað að versla þarna og ég hefði eiginlega átt að versla meira, er að spá í að fara þarna um hverja helgi það sem eftir er sumarsins.
Heyrði einn góðann: If I wanted to hear it from an asshole I would have farted!

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home