miðvikudagur, ágúst 31, 2005

FROSCH og fleira

Ég er búin að vera löt að blogga undanfarið og aðalástæðan fyrir því er að ekkert markvert hefur gerst undanfarið.

Síðustu vikur hafa nemendur streymt til borgarinnar og inni í hverfið mitt sem er rétt við McGill. Margir koma í bílum fullum af drasli með foreldrum sínum og mér sýnist á númeraplötunum á bílunum að flestir séu frá Ontario en svo eru líka einhverjir frá norð-austurhluta USA. Síðustu viku var FROSCH (Freshmen Orientation bla, bla, bla...) í fullum gangi með tilheyrandi partýlátum. Þá er aðalbruggverksmiðjan með bar á skólalóðinni og ungmennin fara á vikulangt fyllerí, eitthvað sem er sérlega spennandi fyrir þá amerísku því að þeir mega ekki drekka þar fyrr en þeir verða 21 árs en hér í Montréal mega þeir byrja að drekka 18 ára. Sumir láta þessi læti fara agalega í taugarnar á sér en mér finnst bara gaman að þessu og svolítið krúttlegt að heyra gelgjulætin. Er ég biluð að finnast tæplega tvítugir strákar sætir? Eins gott að eiginmaðurinn er unglegur!

Hvað annað? Já, Katrina er mætt á svæðið! Hún er hins vegar búin að róa sig heilmikið á ferðinni hingað norður eftir að hafa valdið miklum usla í New Orleans. Hér lýsir hún sér bara í hellidembu og sveittu hitabeltisandrúmslofti, maður getur t.d. ekki haft það huggó inni hjá sér og horft út í rigninguna því að það er svo mikil molla inni í íbúðinni... Annars ætlar hún víst að stoppa stutt blessunin ef að það er eitthvað að marka veðurfræðingana og á morgun á sólin að skína á ný!

Svo koma Anna Lilja og Elli í heimsókn um helgina svo að það eru bjartir tímar framundan! Vei!!!

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com