Lost in translation...
Þó að sumir Québeckarar tali reiprennandi ensku og séu með fullkominn kanadískan hreim þá eru aðrir sem eru ekkert betri en Frakkarnir og það er svolítið gaman að hlusta á þá... Og þar sem að margir frönskumælandi, bæði í Frakklandi og hér í Québec, virðast varla geta skrifað eigið tungumál án þess að verða sér til skammar eiga þeir augljóslega enn erfiðara með að skrifa á erlendri tungu og því fær maður stundum svolítið skondin e-mail á ensku. Einn gaurinn sem vinnur með mér er vægast sagt spaugileg týpa, einhleypur um þrítugt og farinn að fá þennan skemmtilega Québec-skalla svona á miðjum hvirflinum, með alveg einstakt göngulag (sem ég þyki hafa náð góðum tökum á...) sem hann ýkir fram úr öllu hófi þegar hann sprangar í kringum ungar myndarlegar stelpur eins og tík á lóðaríi. Þessi gaur er ágætis vinur Marcusar samstarfsmanns míns og nágranna sem er frá Kaliforníu og kallar alla “buddy.” Allavega, þá er spjátrungurinn alltaf að senda Marcusi e-mail þar sem hann segir: “Thanks body!” og í dag toppaði hann sjálfan sig og skrifaði: “Good body!” en Marcus sagðist ekki hafa gert sér grein fyrir því að þessi gaur hugsaði þannig til sín... Ég sagði honum bara að taka þessu sem hrósi...
Annars ætti ég ekki mikið að vera að gera grín að tungumálafötlun annarra því að ég virðist ekki beint hafa eyra fyrir eigin hreimi. Ég get til dæmis ekki borið fram mitt tiltölulega alþjóðlega nafn þannig að fólk skilji, mér til mikillar armæðu. Ég hef því tekið upp á því að kynna mig bara sem Dóra með rammíslenskum hreimi. Þá endurtekur fólk yfirleitt: “Tótttttra?” eða eitthvað í þá áttina, sem er svo sem ekkert verra en útgáfurnar sem ég fékk þegar ég reyndi að segja þetta með enskum, hvað þá frönskum, hreimi. Ég kinnka yfirleitt bara kolli og tauta “whatever” með mínum íslenska hreimi...

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home