mánudagur, ágúst 15, 2005

Útilega og tónleikar

Jæja, ég er víst búin að vera frekar löt við að skrifa undanfarið enda finnst mér ég alltaf vera að skrifa sömu hlutina aftur og aftur.

Toppurinn á síðustu tveimur vikum er líklega útilegan sem ég fór í til Vermont um helgina ásamt Gillian, Martin og Juliu. Við lögðum af stað seinni partinn á föstudaginn og keyrðum niður í mitt Vermont, sem er réttilega kallað fylki hinna grænu fjalla. Það er alveg ótrúlegt að sjá muninn á landslaginu um leið og maður kemur yfir landamærin. suðurhlutinn á Québec er afskaplega flatur fyrir utan eitt og eitt lítið fjall á stangli, mjög undarlegt landslag en fljótlega eftir að maður kemur yfir landamærin kemur maður inni í mjög fallegt skógi vaxið fjalllendi.

Við höfðum mælt okkur mót við Ari, Sybil, Stephanie, Steven og vinkonu Stephanie á veitingastað sem er í gamalli hlöðu og heitir American Flatbred, hljómar kannski ekki mjög spennandi, ég sá fyrir mér pönnusteiktar Pizza Hut pitsur sem eru svo sem ekkert slæmar út af fyrir sig en þessar voru sko allt öðruvísi. Veitingastaðurinn var inni í gamalli hlöðu og pizzurnar voru með alls konar organic áleggi en þessi hluti Vermont er einmitt þekktur fyrir svoleiðis framleiðslu og það var svona smá hippafílingur í þessu öllu saman. Alveg meiriháttar.

Tjaldstæðin á svæðinu virtust öll vera meira eða minna full þannig að við hin fjögur fræknu fundum okkur leynistað þar sem var eiginlega ekkert annað fólk og tjölduðum í greniskógi í skjóli frá rigningunni, já því að auðvitað þurfti að rigna akkúrat þessa helgi en annars er alltaf rjómablíða! Reyndar var mjög fínt veður á laugardeginum sem var náttúrulega aðalatriðið. Hinn hópurinn var búinn að finna sér tjaldstæði annars staðar svo að við vorum í sitt hvoru lagi. Tjaldstæðið okkar var svona einkasvæði rekið af lítilli familíu ásamt hinni þrílitu læðu Missy, sem ég varð gjörsamlega ástfangin af enda veik fyrir svoleiðis kvikindum...

Við tókum svo á því í útilegustemningunni á laugardeginum, fórum að synda í einni ánni og sveifluðum okkur út í hana hangandi í reypi og hittum svo hinn hópinn hjá einu vatninu og syntum þar líka. Um kvöldið kveiktum við svo eld og grilluðum maísstöngla og pylsur á teini og ég fékk að smakka hinn staðlaða útilegueftirrétt Norðu-Ameríkumanna “smores” (stendur fyrir some more?) sem eru tvær kexkökur með grilluðum marshmallow og súkkulaði á milli, frekar svona væmið eitthvað en samt gaman að prófa. Á sunnudeginum var Gillian svo með óvæntan morgunmat en hún hafði búið til deig sem hún vafði utan um tein og svo fékk hver að grilla sitt brauð yfir eldinum, mjög gott og skemmtilegt.

Annars er ekkert sérstakt í gangi, nema hvað, ég þarf að ákveða á hvaða tónleika ég ætla. Það er náttúrulega ekki spurning að ég skelli mér á Beck einhvern tíma í lok september, þ.e.a.s. ef að það eru enn til miðar. Ég held að það sé uppselt á U2 en það er líka ansi dýrt og ég veit ekki hvort ég fengi neinn á það með mér þó að það væri líklega svaka show. Svo gæti ég kíkt á White Stripes og Doves sem er einmitt ein hljómsveitin sem ég er búin að uppgötva hérna úti. Ég meina það, hvar er ég búin að vera síðustu árin? Vinir okkar eru alveg rosalega vel inni í músík og ég hef látið ýmislegt fram hjá mér fara sem að ég hefði ekki átt að gera, bara svona auðmelt léttmeti eins og ég er vön að hlusta á. Ég hef náttúrulega áður minnst á Arcade Fire, The Shins, Anthony and the Johnsons og kannski eitthvað fleira... en svo er það líka Cat Power sem var víst að spila á innipúkanum í Reykjavík um verslunarmannahelgina, mæli sko hiklaust með henni ef það eru ekki allir aðrir búnir að uppgötva hana! Broken Social Scenes er kanadískt band sem ég er aðeins að hlusta á. Svo eru víst tónleikar hér með Hot Chip sem er víst segamega vinsælt á Íslandi, það litla sem ég hef heyrt í þeim hljómar reyndar eins og versta píkupopp fyrir mér en Pétur segir að það sé alrangt. Ég trúi honum svo sem vel því að ég er svo treg að ég þarf að hlusta á músík nokkrum sinnum áður en ég get gert upp við mig hvort ég fíla hana eða ekki. Svo eru náttúrulega milljón litlir tónleikar sem ég þekki ekki og aðrir sem ég hef barasta engan áhuga á. Djí, ég er örugglega að gleyma einhverju en þetta er orðið nokkuð gott í bili.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com