Jæja, nú eru Anna Lilja og Elli í rútunni á leiðinni hingað til Montréal, vei!
Ég lenti óvænt á smá vinnuskralli í gærkvöldi, nú eru fimmtudagskvöldið eiginlega orðin helstu djammkvöldin hjá mér og svo tek ég það yfirleitt rólega það sem eftir er helgarinnar...
Ég er gjörsamlega dottin ofan í einn klisjukenndan þátt í sjónvarpinu sem heitir: So you think you can danse! og er svona danskeppni í anda Idol. Þarna eru alls konar dansarar, allt frá breikurum og götudönsurum til samkvæmisdansara sem eru látin dansa allar tegundir af dönsum og það er alveg merkilegt hvað gaurar sem hafa mest dansað á hausnum hingað til og aldrei lært neitt geta gert á einni viku. Svo velja dómarar úr þá sem stóðu sig verst og fólk getur hringt og kosið þann sem það vill að haldi áfram. Ég verð að viðurkenna að ég er alger sucker fyrir svona þáttum. Málið er samt að einn gaurinn er frekar svona stór og feitur en samt mjög góður hip-hopari en frekar slappur í öðrum dönsum, allavega þá er þessi gaur svaka svona viðkunnanlegur and America loves him... og ég þori næstum að veðja að gaurinn á eftir að vinna helvítis keppnina! Þrátt fyrir að hann sé alltaf einn af þeim sem dómararnir setja í hættu kjósa allir hann af því að hann er svo næs og hann átti enga vini þangað til að hann fann dansinn í lífinu, mjumjumju... Kannski er bara gott að einhver svoleiðis fær öll þessi verðlaun sem eru í boði og ekki einhver sjálfumglaður dansari sem kemst hvort sem er á einhver segamega díl.
Góða helgi (labor day weekend = frí á mánudag hjá mér!!!)

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home