þriðjudagur, október 04, 2005

Ég verð eiginlega að taka þetta til baka með að haustið sé komið því að síðustu daga er búið að vera yfir 20 stiga hiti og sól! Ég var að spila á golfmóti á laugardaginn í stuttermabol og stuttbuxum, geggjað! Ég held að þetta sé Indian Summer, alveg frábært fyrirbæri, það er aðeins búið að kólna og vara mann við vetrinum en svo kemur aftur blíða í ca. tvær vikur til að ylja manni aðeins fyrir veturinn. Þetta fær mig til að hugsa hvernig í ósköpunum það er hægt að búa á Íslandi veðurfarslega séð...

Aðrar góðar fréttir: Pétur kemur á morgun!!!

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com