Ottawa
Þetta var hin skemmtilegasta helgi. Ég tók rútu til Ottawa beint eftir vinnu á föstudaginn en það tekur rúmlega tvo klukkutíma. Anna Lilja og Elli tóku á móti mér á rútustöðinni og við héldum beint heim til þeirra í fínu íbúðina, ég er alveg smá abbó yfir öllum fínheitunum þó að ég sé alveg sátt við kytruna okkar Péturs. Þau búa líka á mjög góðum stað nálægt háskólanum og ekki langt frá miðbænum. Á föstudagskvöldið kom svo annað íslenskt par, þau Bryndís og Orri, í heimsókn og við áttum skemmtilegar samræður allt kvöldið. Mín samkjaftaði varla enda ánægð að spjalla við Íslendinga eftir einveruna í sumar og vona að ég hafi ekki gert út af við þau hin með munnræpunni...
Á laugardeginum fórum við í göngutúr um borgina, skoðuðum þingið sem er í mjög flottum byggingum við ána og fórum svo á markaðssvæðið þar sem er fullt af veitingastöðum og börum, mjög skemmtilegt svæði. Það hellirigndi á okkur allan daginn þannig að á endanum flúðum við inn í eitt mollið og ég keypti mér eyrnalokka og body lotion, vei. Um kvöldið komu Bryndís og Orri svo aftur í heimsókn og við kíktum út á lífið. Næturlíf Ottawa kom mér þónokkuð á óvart og fullt af fólki niðri í bæ og staðir opnir til ca. 2-3 en þegar Québec-búar lýsa Ontario og Ottawa þá hljómar það svolítið eins og mest óspennandi staður á jarðríki... Ég vissi svo sem alveg að það væri ekki satt. Það sem vakti einna mest ánægju mína var að það er bannað að reykja á börunum og daginn eftir var ég alltaf að þefa af hárinu mínu og tímdi varla að fara í sturtu vegna ekki-reykingarfýlu! Svo ekki sé minnst á þynnkuleysi og almenna vellíðan, djöfull vildi ég að enginn reykti í þessum heimi!
Á sunnudeginum var svo komin sól og blíða og við leigðum bíl og skoðuðum risastóran garð sem er við borg sem heitir Gatineau og er í Québec hinum megin við ánna frá Ottawa. Þetta er greinilega alveg geggjað útivistarsvæði og örugglega gaman að tjalda þar líka. Ég tók svo rútuna heim um kvöldið og þá er sagan öll. Sem sagt frábær helgi, takk fyrir mig Anna Lilja og Elli!
Nú eru bara tvær vikur og tveir dagar í P (þetta er eins og að telja dagana til jóla, nú er aðventan næstum hálfnuð...) og ég er farin að finna hjá mér verulega knúsiþörf, langar mest til að hoppa á ókunnugt fólk úti á götu og knúsa það...

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home