föstudagur, september 09, 2005

Hmmm, þetta voru kannski ekki neinar stórfenglegar fréttir en einhvern veginn bjóst ég nú samt við meiri viðbrögðum...

Er búin að vera hálfleið í vikunni eftir alveg stórskemmtilega helgi en nú er föstudagur svo að ég er öll að koma til. Ég sá fram á heldur einmanalega og rólega helgi en svo kemur í ljós að ég hef hvorki meira né minna en fjóra staði að velja um að fara á í kvöld:

Það er átpartý hjá Pierre en það var eitt fyrsta mannfræðipartýið sem við fórum í í fyrra og þemað er sem sagt að þú átt að koma með eitthvað viðbjóðslega djúsí að borða sem þú vilt helst ekki borða fyrir framan aðra og ég sem var að byrja í megrun í gær... En eins og allar mínar tilraunir til að fara í megrun entist hún ekki einu sinni í einn sólarhring þar sem að ég fékk mér kleinuhringi með Íslendingunum í morgun eins og aðra föstudaga. Planið var náttúrulega að vera geðveikt mjó og brún þegar kallinn kemur heim en ég verð líklega orðin föl og feitari en ég var þegar hann fór, ekki nema að ég taki mig verulega á þennan tæpa mánuð sem er eftir...

Svo er Julia að fara á tónleika með gaur sem heitir Sufjan Stevens eða eitthvað svoleiðis og hún bauð mér að koma með. Ég hef einu sinni heyrt diskinn hans sem hljómaði ágætlega þannig að það kemur alveg til greina, nema hvað ég er ansi blönk eftir ævintýri síðustu helgar og hef varla efni á miðanum sem kostar heila 18 dollara (ca. 1.000 kall)...

Vinnufélagarnir ætla að kíkja á pöbb og fá sér nokkra öllara en ég er ómögulega í stuði fyrir það. Síðan ætla nokkrar breskar stelpur úr vinnunni að kíkja í bíó og buðu mér með.

Á morgun er ekkert planað, alveg týpískt! En það er svo sem alveg kominn tími á eina góða DVD og rólegheit.

Af Pétri er allt gott að frétta. Hann er á fullu að vinna í rannsókninni, frá morgni til kvölds og gengur bara vel. Ég heyri yfirleitt í honum annan hvern dag en hann er ekki í netsambandi þar sem hann er nú.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com