Úff, ég verð víst að reyna að standa mig í að setja inn litla pósta með stuttu millibili, það er meira púl en ég hélt...
Við Pétur fórum á tónleika með tveimur kanadískum hljómsveitum á föstudaginn, Islands og Broken Social Scenes. Tónleikarnir byrjuðu seint, fyrst var einhver DJ að spila og svo kom einn beatboxari á sviðið og gamall söngvari sem söng með og var víst uppáhaldssöngvari Kurt Cobaine. Þeir byrjuðu ágætlega en voru undir lokin alveg að æra liðið sem var svona í yngri og gelgjulegri kantinum. Ég fann líka fyrir ellimerkjum þegar rokkið loks byrjaði því að ég var gjörsamlega að ærast og held barasta að ég hefði notið þess betur að hlusta á geisladiskinn í sófanum heima hjá mér... Tónleikarnir voru samt að mestu leyti fínir og kannski spilaði það inn í að ég var þreytt eftir vinnuvikuna, gamla geit.
Á laugardaginn fórum við svo í mat til Guðrúnar og Mathieu og fengum alveg geggjaðan franskan mat (ekki alveg franskur samt samkvæmt Mathieu). Við sátum og röðuðum í okkur og drukkum með og spjölluðum fram á nótt og ég er hrædd um að við höfum kannski verið örlítið uppáþrengjandi gestir, enda komin í hávaðarifrildi um femínisma undir lokin...
Læt þetta duga í bili.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home