Afsakið, ég er ekki að standa mig...
Atburðir síðustu viku í stuttu máli:
Á föstudaginn var Idol hjá vinnunni minni en þetta var meira svona eins og show þar sem að hljómsveit skipuð starfsmönnum fyrirtækisins og nokkrir sungu með. Þetta var bara nokkuð flott hjá þeim. Svo tróðu þrír gaurar upp á bleikum sundbuxum og með sundhettur með bleikum blómum og dönsuðu. Einn þeirra er Marcus nágranni okkar og samstarfsmaður minn. Þetta var mjög fyndið, sérstaklega af því að tveir þeirra eru vel við vöxt. Undir lokin fengu svo allir að syngja í karókí. Ég var að lokum komin með lagamöppuna og plataði fólk til að syngja hægri vinstri en hafði vit á því að syngja ekki sjálf. Var reyndar næstum lent í dúett með æðsta yfirmanni fyrirtækisins sem ég vissi ekkert hver var en sem betur fer voru aðrir til í að syngja með honum og ég dansaði bara á sviðinu ásamt fleirum enda fleiri á sviðinu en úti í sal undir lokin. Ég náði að draga Pétur með mér og við skemmtum okkur bæði mjög vel.
Daginn eftir komu svo Anna Lilja og Elli ásamt foreldrum hennar og litlu systur sem voru í heimsókn hjá þeim í Ottawa, í dagsheimsókn til Montréal og við þræddum borgina endilanga með þeim. Það var mjög gaman þrátt fyrir rigningu á köflum.
Svo þarf ég aðeins að monta mig... Það var nefnilega starfsmannafundur í gær sem var haldinn á einu hótelinu hérna í borginni og haldiði ekki að mín hafi bara fengið tvær viðurkenningar fyrir vel unnið starf. Eina Swiss Army klukku og 1.000 dollara (ca. 50.000 kall) sem kemur sér nú heldur betur! Svo fékk deildin mín (ég, Johanne og Marcus) líka viðurkenningu, einhverja áritaða bolla sem við fáum afhenta síðar. Ég veit ekki alveg hvort að ég á þetta skilið en ég var nýlega búin að fá myndarlega launahækkun og þó að allir fái launahækkun einu sinni á ári var mín extra há þannig að mig grunaði svo sem alveg að fólk væri sæmilega ánægt með mig hérna. Það veitir svo sem ekki af að lyfta manni aðeins upp þessa dagana því að nú erum við að vinna af okkur þá þrjá daga sem skrifstofan er lokuð milli jóla og nýárs og vinnum því klukkutíma lengur, til 6 á daginn, frá mánudegi til fimmtudags í sex vikur takk fyrir! Ég held nú að fólk myndi seint sætta sig við annað eins á Íslandi en hér þorir enginn að æmta né skræmta. This is the corporate world...

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home