Jæja þá er þessi helgi búin og hún var líka aldeilis fín, svo fín að hin útivinnandi eiginkona heimilisins var hreint ekki svo spennt að fara í vinnuna í morgun... en þetta hefst allt á endanum, öllum mánudögum lýkur einhvern tíma...
Þessa helgina gerðum við nokkrar nýjar uppgötvanir hér í Montréal-borg. Á föstudaginn skelltum við okkur á Le Divan Orange sem er svona arty farty grænmetisstaður og bar ásamt Martin, Gillian, Juliu og Ari og snæddum gómsæta grænmetisrétti. Ég þarf alveg að fara þangað aftur og prófa fleira af matseðlinum. Eftir það fórum við Pési svo bara snemma heim enda ætlaði ég að vera útsofin og óþunn (þykk?) morguninn eftir þar sem ég átti pantaðan tíma í nuddi sem hann eiginmaður minn var svo huggulegur að gefa mér.
Nuddið var alveg æðislegt og ég hef þegar pantað nudd í allar afmælis- og tækifærisgjafir í framtíðinni og það finnst mér bara mjög sanngjarnt því að það er einstaklega auðvelt lausn fyrir Pétur sem þarf aldrei aftur að vafra um bæinn og finna eitthvað fyrir hina mjög svo vandlátu eiginkonu...
Eftir nuddið gerðum við svo aðra uppgötvun helgarinnar og skelltum okkur loksins á samlokustað sem M&G hafa oft og mikið mælt með. Þessi staður er í 10 mín labbi frá heimili okkar og heitir Santropol og er mjög svo huggulegt kaffihús með skemmtilegri verönd og ég sá strax eftir öllum sólardögunum síðasta sumar sem ég sat ekki á þeirri verönd. Þeir sérhæfa sig í frumlegum samlokum, kaffi og te og ég hlakka mikið til að taka íslenska vini með þangað, þ.e.a.s. ef þeir láta einhvern tíma sjá sig! Ég sé alveg fyrir mér að við hjónakornin eigum eftir að vera fastagestir á þeim stað.
Á laugardagskvöldið fórum við svo með M&G og vini þeirra í afmælispartý til Diane. Við hittumst fyrst á skemmtilegum bar sem heitir Bly Kund eða eitthvað svoleiðis (ég held að þetta sé tékkneska) og hefur alltaf verið fullur þegar við höfum reynt að fara þangað áður þannig að þetta var eiginlega enn ein uppgötvunin. Það var fínt í partýinu en við vorum ekkert allt of lengi því Pétur þurfti að fara að læra daginn eftir.
Á sunnudaginn fórum við svo á uppáhaldshamborgarastaðinn okkar hérna sem er alveg minuscule, minni en hamborgarabúllan heima og með minuscule hamborara, maður þarf í alvörunni að panta tvo en þeir eru líka gekt góðir, uppáhaldið okkar er méditerranéen með kryddostasósu, nammmm. Við fórum þangað líka um síðustu helgi og í þetta skipti sögðu gaurarnir við okkur: “Sjáumst um næstu helgi”! Þannig að við höfum víst ekki um annað að velja…
Úff ég er bara orðin svöng eftir allt þetta blogg um mat en það dugir víst ekki að gúffa í sig því við stefnum á að fara í Y-ið á eftir eins og það er kallað (YMCA líkamsrækt), það á sko að taka sig á núna!

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home