Bara örstutt um síðustu helgi...
...var Halloween og við Pétur skelltum okkur á grímuball á Thomson House. Verst var að margir af bestu vinum okkar voru ekki þarna en við fórum í mannfræðipartý og hittum svo sem fullt af skemmtilegu fólki. Við vorum bæði á síðustu stundu að finna okkur búninga, ég fékk lánaða ljóshærða hárkollu hjá Lucy sem er að vinna með mér og svo fór ég í fínan kjól og háhælaða skó og settir á mig gerviaugnhár og allar græjur og allir gerðu ráð fyrir að ég væri Marylin Monroe sem var bara fínt. Pétur fór svo í jakkafötin sín öfugt þannig að þau opnuðust á bakinu og ég málaði hann óhugnanlega í framan og hann var bara nokkuð flottur. Það voru auðvitað allir í búningum og margir mjög frumlegir og skemmtilegir. Við erum eiginlega ekki búin að taka neinar myndir undanfarið en við verðum að fara að taka okkur á og ég ætla að koma upp nýrri myndasíðu þar sem hin er búin að loka þegar ég nenni.
Annars ekki meira að frétta í bili…

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home