Jæja, þá er það bókað: Herra og frú Waldorff mæta á svæðið eldsnemma morguns sunnudaginn 18. desember og ætla að dvelja á sinni ástkæru exotísku eyju lengst norður í Atlantshafi (á meðan aðrir Montréal-búar sækjast frekar eftir að flýja fimbulkuldann á exotískum eyjum í Karíbahafinu...) fram yfir áramót. Ég þarf víst að mæta til vinnu 3. jan. þannig að ég neyðist til að yfirgefa Klakann 2. en Pétur fer ekki fyrr en 6. þar sem hann verður upptekin við Plimmó-spilun fram að því. Fyrir þá sem ekki þekkja til Plimmó þá fer það fram í sumarbústða úti á landi með heimatilbúnum leikreglum, almennum fíflalátum og miklu áfengismagni en nú er ég að uppljóstra hernaðarleyndarmáli sem stelpur eiga ekkert að vita um, svo að það er best að ég þegi... Allavega þá hlakka ég óskaplega mikið til að hitta alla og njóta jólanna eins og þau gerast best, á Íslandi (sem ég er alveg handviss um þó að ég hafi ekki prófað neitt annað!).
Smá svekkelsi í allri gleðinni: Var að fatta að ég fékk helmingi minni bónus en ég hélt að ég myndi fá, það er ekkert verið að spandera of mikið í svona lágtsetta lúða eins og mig. Það eru bara þeir sem munar ekkert um svona bónus sem fá fulla upphæð, að sjálfsögðu...

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home