Aðalatriðið hjá mér þessa dagana er að reyna að finna mér föt áður en ég kem til Íslands um jólin því að ég er skíthrædd við að verða aðallúðinn... Svo að nú leita ég logandi ljósi að gallabuxum sem kosta í mesta lagi 100 dollara (5000 kall) því að fyrir mér er hærri upphæð en það algerlega út úr kortinu en ég verð að viðurkenna að þetta gengur ekkert sérlega vel. Sérstaklega þar sem að ég er með einhverjar hugmyndir um hvað sé í tísku á Íslandi því að ég vil ekki vera einhver amerískur lúði... Er þetta heilbrigt? Svo er maður að láta familíuna hjálpa sér við farmiðakaup og eyðir eigin aur í flíkur, ussss. Það sem flækir þetta svo enn meira er að ég þarf að vera í konufötum í vinnunni, má ekki vera í gallabuxum nema á föstudögum og svo eru vinir okkar svona frekar kasjúal í klæðaburði og mig langar líka til að fitta inn þar, fyrir utan að ég er svona gallabuxnatýpan. Svo langar mig líka rosalega í svöt leðurstígvél en þau skemmast í saltinu á veturna og svo langar mig í kápu og peysu og boli og, og... Maður hlýtur að lifa góðu lífi ef þetta er manns helsta áhyggjuefni!

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home